Aðgangur ókeypis og öll velkomin
Laugardaginn 8. febrúar verður opinn dagur í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá sem hefst með hljóðfærakynningu að morgni og stofuflakki. Eftir hádegi verður fjöldi tónleika á dagskrá þar sem nemendur skólans koma fram í ýmsum hljómsveitum, hljóðfærahópum og á einstaklingstónleikum. Tónleikarnir fara fram í Hásölum og á Torginu. Starfsfólk og nemendur Tónlistarskóla Hafnarfjarðar bjóða gesti og gangandi velkomna að skoða skólann og sjá það góða starf sem þar fer fram.
