Er hjólið klárt fyrir sumarið?
Er hjólið klárt fyrir sumarið? Hjólreiðafélagið Bjartur í samvinnu við Heilsubæinn Hafnarfjörð verður með viðgerðardag á Thorsplani þar sem Hafnfirðingum…
Tónagull og Hafnarfjarðarbær bjóða upp á fjöltyngda tónlistarsmiðju fyrir fjölskyldur með börn á aldrinum 0-4 ára. Fyrsti tíminn er á föstudag milli klukkan 9.30-10.30 og svo vikulega.
Í smiðjunni skemmta börnin og fullorðnir sér við að syngja söngva og þulur, hreyfa sig og leika með litríka klúta, auk þess að spila á ýmis smáhljóðfæri sem eru sérstaklega valin fyrir þennan aldurshóp. Markmiðið með smiðjunni er að efla gleði og vellíðan í gegnum tónlist og hreyfingu, jafnt fyrir börn og foreldra. Smiðjan hentar vel foreldrum sem hafa börnin sín heima en langar að hitta aðra foreldra og leyfa börnunum að hitta önnur börn.
