Svo er tilvalið að plokka alla daga ársins!
Stóri plokkdagurinn verður haldinn frá morgni til kvölds sunnudaginn 27. apríl. Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa og starfsfólk fyrirtækja í Hafnarfirði til virkrar þátttöku í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni eða á öðrum vel völdum svæðum.
Plokkarar eru vinsamlega beðnir um að nota glæra ruslapoka í plokki sínu til að auðvelda flokkun og urðun. Plokkarar eru jafnframt beðnir um að tilkynna um þá staði þar sem pokar eru skildir eftir í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins þar sem hægt er að taka mynd með nákvæmri staðsetningu.
Í gegnum ábendingagátt er einnig tilvalið að benda sveitarfélaginu á svæði sem þarf að hreinsa sérstaklega eða koma með ábendingar um annað það sem betur má fara.
Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar í Ráðhúsi og á Norðurhellu tekur forskot á plokksæluna og plokkar í nærumhverfi sinna starfsstöðva á föstudagsmorgun.