Til að fagna nýju hlaupalínu 66°Norður, Helgafell, er öllum áhugasömum boðið að hlaupa hringinn í kringum Helgafell.
Leiðin í kringum Helgafell er um það bil 7km og er hún nokkuð auðfarin og því tilvalin fyrir bæði byrjendur sem og lengra komna hlaupara.
Að loknu hlaupi verður boðið upp á tónlist, ýmsa hressingu, afsláttarmiða hjá 66°Norður og almenna stemningu. Einnig verður hægt að skoða allar nýju hlaupavörurnar sem voru að koma í sölu fyrir sumarið.
Byrjum sumarið með stæl og fögnum hækkandi sólu!
Ábendingagátt