Sundhöll Hafnarfjarðar lokuð milli 23. júní – 17. ágúst
Sundhöll Hafnarfjarðar lokar í sumar frá 23. júní til 17. ágústs. Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug eru opnar.
Sumarlokun í Sundhöllinni
Sundhöll Hafnarfjarðar lokar í sumar frá 23. júní til 17. ágústs. Sundhöllin er elsta laug Hafnarfjarðar. Hún er þekkt fyrir sitt rólega andrúmsloft. Við erum heppin. Tvær aðrar sundlaugar eru í Hafnarfirði.
Ásvallalaug er stærsta og vinsælasta laug landsins. Sundlaugin er innanhúss. Laugin er 50 metrar á breidd og er vanalega skipt með brú, þannig að helmingur laugarinnar er 25 metrar að lengd og hinn helmingurinn 50 metrar.
- Almennur opnunartími
- Mánudaga–fimmtudaga 06:30–22:00
- Föstudaga 06:30–20:00
- Laugardaga 08:00–18:00
- Sunnudaga 08:00–17:00
Hin er Suðurbæjarlaug sem notið hefur mikilla vinsælda frá fyrsta degi. Í Suðurbæjarlaug er 12,5 x 25 metra útisundlaug sem er samtengd við sérhannaða kennslulaug innandyra sem er einnig góð barnalaug. Úti eru þrír heitir pottar, vatnsgufa, bunusveppur í vaðlaug, tvær vatnsrennibrautir og tvö köld kör með mismunandi hitastigi
- Almennur opnunartími
- Mánudaga–fimmtudaga 06:30–22:00
- Föstudaga 06:30–20:00
- Laugardaga 08:00–18:00
- Sunnudaga 08:00–21:00
Lestu meira um sundlaugar Hafnarfjarðar hér.
Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!
Uppfært – Sundhöllin opnar 25. ágúst.