Opið hús vegna nýrrar lóðar að Vitastíg 12A
Auglýsing um skipulag – Hafnarfjarðarbær Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 25. febrúar 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi…
Nýtt deiliskipulag, Hellnahraun 4. Áfangi
Bæjarráð Hafnarfjarðar, f.h. bæjarstjórnar, samþykkti á fundi sínum 10. júlí sl. að auglýsa nýtt deiliskipulag í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gert er ráð fyrir 66 misstórar atvinnulóðir ætlaðar léttum, hreinlegum iðnaði eða þjónustu. Svæðið er skilgreint sem athafnasvæði í Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013–2025 og er staðsett sunnan aksturs- og skotæfingasvæðis í Kapelluhrauni. Kynningartíminn er til 28.ágúst 2025 og má nálgast tillöguna á vef skipulagsgáttar skipulagsgatt.is og hfj.is/skipulag. Athugasemdir eða ábendingar skulu berast með rafrænum hætti í gegnum skipulagsgátt.