Sería þessi kviknaði út frá þörfinni til að finna sjálfa mig. Því lengur sem ég leitaði áttaði ég mig þó á því hversu vonlaus og jafnvel óþörf sú leit var.

Síðasta sumar rakst ég á orð listakonunnar Georgiu O’Keeffe: „Ég hef ekkert gert í allt sumar nema beðið eftir að verða aftur ég sjálf.“ Sú tilfinning að vera stöðugt að bíða, vera í kyrrstöðu, að leita að einhverju óskilgreindu, hefur fylgt mér lengi.

Sjálfsmynd mín samanstendur af hinu áþreifanlega og hinu skáldaða. Hún endurspeglast í náttúru, kyrralífi, óþekktum andlitum og hugmyndum sem eigið ímyndunarafl hefur skapað. Stundum spegla ég mig í öðrum, meðvituð um að líf hvers einstaklings er jafn margþætt og flókið og mitt eigið. Sú vitund ber með sér bæði huggun og sorg, líkt og við séum öll ólík brot af sömu sál.

Í þessum myndum lifa minningar og draumar hlið við hlið. Rammarnir sitja eftir sem sönnun um það sem var en þurrka út mörkin á milli tíma og rúms. Þær geyma trega yfir augnablikum sem ég náði ekki að fanga og meðtók ekki fyrr en þau voru liðin. Ljósmyndirnar bera með sér fortíðarþrá og söknuð, ekki aðeins eftir því liðna, heldur einnig eftir núinu á meðan það rennur mér úr greipum.

Elín Ósk Jóhannsdóttir (1996) lauk námi í listrænni ljósmyndun við Ljósmyndaskólann árið 2021. Í námi sínu vann hún markvisst með samspil ljósmynda og texta, en útskriftarverkefnið hennar var bókverk sem sameinaði eigin ljósmyndir, fundið efni og texta sem varð til í samtali við rithöfundinn Díönu Sjöfn Jóhannesdóttur.

Eftir útskrift hefur Elín tekið að sér fjölbreytt ljósmyndaverkefni – allt frá brúðkaupsljósmyndun og umfangsmiklum auglýsingaherferðum að því að mynda á bak við tjöldin á kvikmyndasettum. Ástríða hennar liggur þó fyrst og fremst í filmuljósmyndun og þeirri nálgun sem hún kallar fram. Filmuvélin krefst þess að ljósmyndarinn hægi á sér, staldri við og varðveiti hvert augnablik af meiri alúð.

Í ljósmyndun finnur Elín leið til að segja sögur. Mynd og texti fléttast saman og skapa rými fyrir túlkun. Ein ljósmynd getur orðið upphaf að mörgum frásögnum og vakið tilfinningar, minningar og spurningar hjá áhorfandanum.

Í dag starfar Elín sem hugmynda- og textasmiður og stundar jafnframt nám í ensku við Háskóla Íslands.

Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 15. janúar frá 18:00-21:00 og allir hjartanlega velkomnir!

Aðrir opnunartímar:

Fös.                      16 jan            13:00 – 18:00
Lau.                      17. jan            12:00 – 17:00
Sun.                      18. jan           14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý er styrkt af Menningar og ferðamálanefnd
Hafnarfjarðarbæjar vegna viðburðarins

—————————–

This series began with an obsession: the desire to find myself. But the more I searched, the more I realized how impossible, and maybe even unnecessary, that search is.

Last summer, I came across a quote from the artist Georgia O’Keeffe: “I have done nothing all summer but wait for myself to be myself again.” That sense of waiting, lingering, and searching for something that may never fully appear has stayed with me.

My identity feels both fixed and fictional, reflected back to me through nature, still life, strangers and constructed ideas. Sometimes I recognize myself in others, in the realization that every passerby carries a life as vivid and complex as my own. That thought is both comforting and somber – as if each of us is only a fragment of the same soul.

The images hold memory and absence at once. The frames remain as evidence, while blurring the lines between time and place. There is melancholy in the echoes I could not capture, and in the moments I did not notice until they had already passed. These photographs carry nostalgia and longing, not just for the past, but also for the present as it slips away.

Elín Ósk Jóhannsdóttir (1996) graduated in Fine Art Photography from The Icelandic School of Photography in 2021. During her studies, she devoted much of her work to exploring the relationship between image and text, an area that became the core of her creative interest. Her graduation project was a photography book combining her own photographs, found material, and text developed in collaboration with the writer Díana Sjöfn Jóhannesdóttir.

After graduating, Elín has worked on a wide range of photographic projects – from wedding photography and large-scale advertising campaigns to shooting behind the scenes on film sets. Her passion, however, lies first and foremost in film photography. Working with film requires the photographer to slow down, pause, and preserve each moment with greater care.

For Elín, photography is a way of telling stories. Image and text intertwine to create space for interpretation. A single photograph can open doors to many narratives, stirring emotions, memories, and questions within the viewer.

Elín currently works as a content & copywriter, while also studying English at the University of Iceland.

There will be a special exhibition opening on Thursday, January 15th  from 18:00-21:00 and everyone is welcome!

Other opening hours

Fri                            16th   Jan           13:00 – 18:00
Sat                           17th   Jan           12:00 – 17:00
Sun                          18th   Jan           14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý is sponsored by the Culture and Tourism Committee of Hafnarfjörður for this event.

 

Ábendingagátt