Ævar vísindamaður út um allt í Hvaleyararskóla

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Troðfullt var á göngum Hvaleyrarskóla í morgun þegar Ævar vísindamaður leit í heimsókn. Lestrarsprettur endaði með einstaklega vel heppnaðri uppskeruhátíð.

Ævintýraheimur í Hvaleyrarskóla

Troðfullt var á göngum Hvaleyrarskóla í morgun þegar Ævar vísindamaður leit í heimsókn. Nemendurnir höfðu undirbúið komu hans vel. Hver einasti veggur skreyttur myndum og list sem þau höfðu unnið úr Þín eigin- bókum hans. Foreldrarnir tóku verkið út.

„Ég kom hingað áður en þau byrjuðu á lestrarsprettinum og var að segja þeim frá bókunum mínum. En mig grunaði ekki að þetta yrði svona glæsilegt hjá þeim,“ sagði Ævar vísindamaður þegar hann gekk um ganga Hvaleyrarskóla og virti fyrir sér afraksturinn.

„Ég er mjög hræður að labba hérna í gegn.“ Vísindamaðurinn og leikarinn hafi þá  ekki gengið í gegnum draugahús efstu bekkinganna. Þá varð hann örugglega hræddur, svo vel tókst til.

„Mér finnst ótrúlega falleg vinnan sem starfsfólk skólans og nemendur hafa sett í þetta en líka hugmyndaauðgi skólans að láta sér detta í hug að gera svona og að það sé tekinn tími til að virkja bækurnar á svona máta í skólanum.“ Fjórði bekkur orðinn sérfræðingur í geimnum og sá þriðji í risaeðlum.

„Þetta er ofsalega vel og fallega gert,“ segir Ævar. Við gerð draugahússins hafi verið horft til bókarinnar Skólalita. „Vá, vá, virkilega flott,“ sagði hann eftir heimsókn í það.

Ævar hefur ritað fjölda bóka, leikverka og léttlestrarbóka. Sú næsta kemur út í maí. Hann tekur þátt í vorbóka og jólabókaflóðinu – er iðinn rithöfundur.

Vala Björk Stefánsdóttir aðstoðarskólastjóri segir lestrarsprettinn í aðdragandanum hafa snúist um að lesa bækur Ævars. Krakkarnir hafi lesið extra mikið heima. Svo hafi þrír dagar verið teknir í að undirbúa þennan opna dag sem stóð í dag.

„Allir bekkir tóku þátt,“ segir Vala. „Tíundi bekkurinn var með draugahúsið og þangað er bannað að koma nema í fylgd með fullorðnum.“ Þau kennararnir séu virkilega stoltir af árangrinum enda skólinn glæsilegur eftir þennan lestrarsprett á bókum Ævars.

 

Meðal verka Ævars = Þín eigin-bækurnar

  • Þín eigin þjóðsaga (2014)
  • Þín eigin goðsaga (2015)
  • Þín eigin hrollvekja (2016)
  • Þitt eigið ævintýri (2017)
  • Þitt eigið tímaferðalag (2018)
  • Þinn eigin tölvuleikur (2019)
  • Þín eigin undirdjúp (2020)
  • Þín eigin ráðgáta (2021)
Ábendingagátt