Hvaleyrarskóli sigrar í skákkeppni efri bekkjanna
Sveit Hvaleyrarskóla sigraði í skákmóti 8.-10. bekkja grunnskóla Hafnarfjarðar í gær. 6 sveitir kepptu, samtals 36 skámkenn og 12 liðstjórar. Sveit Víðistaðaskóla varð í 2. sæti og sveit Hraunborgarfélaga í því þriðja.
Skákin lifir í grunnskólum Hafnarfjarðar
Skákmót 8.-10. bekkja grunnskóla Hafnarfjarðar fór fram í Hvaleyrarskóla síðdegis í gær. Skáksveitir frá 6 skólum, samtals 36 skákmenn og 12 liðsstjórar mættu til leiks. Ægir Magnússon, skákkennari í Hvaleyrarskóla, bauð keppendur velkomna fyrir hönd skólans. Mótið er samstarfsverkefni Kiwanisklúbbsins Hraunborgar og félagsmiðstöðva Grunnskólanna.
Ægir þakkaði Hraunborgarfélögum stuðninginn og sérstaklega Gunnþóri Þ. Ingasyni, skipuleggjanda mótsins á vegum Hraunborgar og aðaltengiliði klúbbsins við skólana og hugsjónamanni fyrir skákíþróttinni. Guðni, forseti Hraunborga, setti mótið sem haldið var í fjórða sinn. Helgi Ólafsson stórmeistari var mótsstjóri og Auðbergur Magnússon dómari. Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, formaður menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar lék, að beiðni mótsstjóra fyrsta leikinn í skákmótinu.
Sveit Hvaleyrarskóla varð sigurvegari mótsins og sveit Víðistaðaskóla í öðru sæti. Sveit Hraunvallaskóla varð í þriðja sæti.
„Við Hraunborgarfélagar erum þakklátir fyrir að fá að vera styrktaraðilar grunnskólaskákmóta hér í Hafnarfirði með því að veita verðlaunapeninga, bikar og veitingar,“ sagði Guðni Freyr Ingvason, formaður Kiwanisklúbbsins Hraunborgar. Hann þakkað keppendum fyrir drengilega keppni og prúðmennsku og óskaði sigurvegurum til hamingju. Hann þakkaði Helga fyrir röggsama en mildleg stjórn og Auðbergi fyrir dómgæslu og færði þeim bókagjöf.
Já, framtíðin er björt með slík skákungmenni í okkar röðum.