Alþjóðleg hátíðarstemning í Hraunvallaskóla

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Það var sannkölluð alþjóðleg hátíðarstemning í Hraunvallaskóla í lok síðustu viku þegar CISV, alþjóðlegar sumarbúðir barna, buðu gestum og gangandi að skyggnast inn í einstakan heim vináttu, fjölbreytni og friðar.

Opið hús hjá alþjóðlegum sumarbúðum CISV í Hraunvallaskóla

Það var sannkölluð alþjóðleg hátíðarstemning í Hraunvallaskóla í lok síðustu viku þegar CISV, alþjóðlegar sumarbúðir barna, buðu gestum og gangandi að skyggnast inn í einstakan heim vináttu, fjölbreytni og friðar. Í sumar hafa börn og ungmenni frá 14 löndum tekið þátt í CISV sumarbúðunum í Hafnarfirði. Þau hafa fengið tækifæri til að kynnast ólíkum menningarheimum, byggt upp vináttu og upplifað hversu gaman það er að vinna saman með opnum huga og virðingu. Á opna húsinu deildu þátttakendur menningu sinni með þjóðlegum búningum, tónlist, dansi og söng ásamt því að leyfa gestum að smakka alls kyns góðgæti frá sínu heimalandi. Þetta var einstakt tækifæri til að upplifa smá brot af þeirri heimsreisu sem sumarbúðir CISV eru. CISV eru alþjóðleg friðarsamtök sem leggja áherslu á frið í gegnum vináttu og skilning á milli þjóða – og sumarbúðirnar eru lifandi dæmi um þetta mikilvæga starf.

 

Ábendingagátt