Setbergsskóli sigraði í Veistu svarið? 

Fréttir

Mikil spenna ríkti í úrslitum spurningakeppninnar Veistu svarið? sem fram fóru í vikunni, þar sem lið Setbergsskóli og Víðistaðaskóli áttust við. Að lokum hafði Setbergsskóli sigur með minnsta mun, 17–16, eftir æsispennandi keppni. Sigur Setbergsskóla er sérstaklega eftirtektarverður þar sem skólinn bar einnig sigur úr býtum í keppninni árið 2025, og hefur því varið titil sinn með glæsibrag. 

Spennandi úrslit réðust með einu stigi

Þekking, einbeiting og keppnisandi  

Sigurlið Setbergsskóla skipuðu þau Hrafnkell Hrafnsson, Karólína Bríet Arelakis og Reynir Örn Sigrúnarson, undir leiðsögn þjálfarans Margrétar Guðbrandsdóttur. Varalið skólans skipuðu Andri Jón Ágústsson, Hrannar Pétur Sigurðsson og Sigurður Aksel Thoroddsen. Lið Víðistaðaskóla var skipað þeim Steinari Loga Hallgrímssyni, Lilju Bergrós Kristjánsdóttur og Orra Kristmundssyni, með Birki Má Viðarsson sem þjálfara. Varamenn voru Hrafn Tinni Sigurjónsson, Róbert Hugi Sævarsson og Sigurður Stefán Ólafsson. Bæði lið stóðu sig með miklum sóma og ljóst að þar fara framtíðar keppendur í Gettu betur sem sýndu bæði þekkingu, einbeitingu og keppnisanda. 

Tenging frá fyrri tíð 

Spyrill keppninnar var Tómas Geir Howser Harðarson og spurningahöfundur og stigavörður var Einar Baldvin Brimar. Skemmtilegt er frá því að segja að þeir eiga báðir tengingu við keppnina frá fyrri tíð; Tómas keppti sjálfur til úrslita fyrir Víðistaðaskóla og Einar Baldvin fyrir Setbergsskóla. Þeir lýsa því sem bæði spennandi og ánægjulegu að fá nú að koma að keppninni sem skipuleggjendur eftir að hafa fylgst með henni í fjölda ára. 

Veistu svarið? er mikilvægur vettvangur fyrir nemendur til að spreyta sig í fróðleik, efla sjálfstraust og þjálfa samvinnu – og úrslitin í ár sýndu svo ekki verður um villst að framtíðin er björt. 

Ábendingagátt