Ásvallalaug lokuð um helgina vegna sundmóts

Tilkynningar

Íslandsmeistaramót í sundi verður haldið í Ásvallalaug um helgina. Laug verður þar af leiðandi lokuð almenningi.

Íslandsmeistaramót í sundi verður haldið í Ásvallalaug í Hafnarfirði dagana 18. – 20. nóvember. Ásvallalaug verður þar af leiðandi lokuð almenningi alla helgina; föstudag, laugardag og sunnudag. Gym Heilsa líkamsrækt verður opin á meðan móti stendur.

Suðurbæjarlaug er opin um helgina. Frá kl. 6:30 – 20 á morgun föstudag, 8-18 á laugardag og 8 – 17 á sunnudag. Sundhöll Hafnarfjarðar er opin frá kl. 6:30 – 21:00 á morgun föstudag.

Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!

Ábendingagátt