Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2025

Fréttir

Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 23. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2025. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Skilafrestur tilnefninga er til 1. febrúar.

Hver verður bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2025?

Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 23. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2025 við hátíðlega athöfn í Hafnarborg. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2024.

Skilafrestur tilnefninga er til 1. febrúar 2025

Einungis listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað við lögheimili síðustu 12 mánuði. Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2025 fær greiddar 500 þúsund krónur. Umsóknum og ábendingum skal skilað á rafrænu eyðublaði á vef Hafnarfjarðarbæjar eða með tölvupósti á menning@hafnarfjordur.is

Tengt efni:

Ábendingagátt