Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2024. Ebba Katrín hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir leik á sviði og í sjónvarpi. Hefð hefur skapast fyrir því að halda síðasta vetrardag hátíðlegan í Hafnarfirði með vali á bæjarlistamanni ársins.
Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2024. Ebba Katrín hefur vakið verðskuldaða athygli síðustu misseri fyrir leik á sviði og í sjónvarpi. Hefð hefur skapast fyrir því að halda síðasta vetrardag hátíðlegan í Hafnarfirði með vali á bæjarlistamanni ársins.
„Þetta er heiður sem kveikir í mér að vilja til að gera meira og halda áfram á þessari braut. Algjör innspýting,“ segir Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir feril og sigra Ebbu Katrínar hvatning fyrir Hafnfirðinga sem hafi fylgst stoltir með árangri hennar: „Fyrir hönd Hafnfirðinga þakka ég Ebbu Katrínu fyrir framlag hennar til menningarlífsins í Hafnarfirði. Við vonum öll að nafnbótin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2024 verði henni hvatning til áframhaldandi sigra á leiklistarsviðinu.“
Ebba Katrín starfar við Þjóðleikhúsið og leikur þetta leikárið í Orði gegn orði, Frosti og Ellen B. Leikferillinn verður sífellt lengri. Hún lék meðal annars í Rómeó og Júlíu þar sem hún var einnig einn tónlistarhöfunda. Einnig Uglu í Atómstöðinni-endurliti og fékk hún Grímuverðlaun fyrir. Ebba Katrín lék í Nokkrum augnablikum um nótt, Ást og upplýsingum og Meistaranum og Margarítu.
Ebba Katrín útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands 2018. Hún starfaði fyrst við Borgarleikhúsið eftir útskrift þar sem hún lék Emmu í Dúkkuheimili 2. hluta, Marínu í NÚNA 2019, Ófelíu og Laertes í Hamlet litla og Filippíu í söngleiknum Matthildi. Hún byrjaði ung að leika og steig fyrst á stokk í Setbergsskóla í Hafnarfirði. Hún gekk í Versló og samdi og setti í kjölfarið upp leikritið Konubörn í Gaflaraleikhúsinu árið 2015. Verk sem hún samdi með hópi kvenna um um vandkvæðin sem fylgja því að vera hvorki barn né fullorðinn, hvorki stelpa né kona.
Hún lék í Mannasiðum á RÚV, í kvikmyndinni Agnesi Joy, þáttaseríunum Venjulegu fólki 2 og 3. Þá hefur hún leikið í stuttmyndunum og Áramótaskaupinu. Síðustu misseri hafa verið gjöful á ferli Ebbu Katrínar. Ekki aðeins hefur hún fengið lofsamlegra dóma fyrir einleikinn Orð gegn orði, sem hún lýsir sjálf sem eldskírn á sviði, heldur kynntist þjóðin henni enn betur á skjánum í þáttaröðinni Húsó.
En hverjir eru hápunktarnir að hennar mati? Jú, Konubörn, Orð gegn orði og Húsó segir hún að standi hæst á ferlinum hingað til.
Ebba Katrín ólst upp í Hafnarfirði og sleit þar barnsskónum. Hún ber menningarlífi í Hafnarfirði gott vitni. Hún er fjölhæf leikkona, bæði í sjónvarpi og á sviði. Þessa dagana er hún til að mynda í upptökum á sjónvarpsþáttaröð Vesturports um Vigdísi Finnbogadóttur.
Við óskum Ebbu Katrínu innilega til hamingju með titilinn með hjartans þökkum fyrir eftirtektarvert framlag í þágu menningarlífsins í Hafnarfirði!
2023 – Pétur Gautur, myndlistamaður
2022 – Björn Thoroddsen, gítarleikari
2021 – Friðrik Dór Jónsson, tónlistarmaður
2020 – Bergrún Íris Sævarsdóttir, barnabókahöfundur og teiknari
2019 – Björk Jakobsdóttir, leikkona og leikstjóri
2018 – Björgvin Halldórsson, tónlistarmaður
2017 – Steingrímur Eyfjörð, myndlistarmaður
Ekki voru útnefndir bæjarlistamenn á árunum 2015 til 2016
2014 – Andrés Þór Gunnlaugsson, tónlistarmaður
Ekki voru útnefndir bæjarlistamenn á árunum 2010 til 2013
2009 – Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, söngkona
2008 – Sigurður Sigurjónsson, leikari
2007 – Jónína Guðnadóttir, myndlistarmaður
2006 – Elín Ósk Óskarsdóttir, söngkona
2005 – Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna), myndlistarmaður
Við val á bæjarlistamanni Hafnarfjarðar kallar menningar- og ferðamálanefnd eftir tilnefningum bæjarbúa. Árlega berst mikill fjöldi þeirra enda hefur Hafnarförður stimplað sig inn sem vagga menningar og lista.
Hafnarfjarðarbær er þekktur fyrir iðandi menningarlíf sem er drifið áfram af kraftmiklu listafólki þar sem einstaklingurinn sjálfur, framlag hans, sköpun og þátttaka spilar stærsta hlutverkið. Bæjarlistamaður fær 1,5 milljónir í viðurkenningarskyni til að vinna áfram að list sinni.
Já, hafnfirskar kveðjur til þín Ebba Kartrín.
Brettafélag Hafnarfjarðar hefur komið sér vel fyrir í nýrri og glæsilegri brettahöll að Selhellu 7 í Hafnarfirði og opnaði þar…
Megi mátturinn vera með okkur öllum í maí og alla aðra mánuði ársins. Hefð hefur skapast fyrir því að Bókasafn…
Fjölbreytt námskeið og sumartómstund standa börnum og ungmennum á aldrinum 6-13 ára til boða á vegum Hafnarfjarðarbæjar sumarið 2024 þar…
Hefur þú áhuga á garðræktun? Langar þig að gera eitthvað öðruvísi og spennandi í sumar? Viltu taka þátt í verkefni…
Matjurtagarðar Hafnarfjarðarbæjar eru opnir öllum íbúum Hafnarfjarðar gegn vægu gjaldi. Hér um að ræða frábært tækifæri fyrir einstaklinga og fjölskyldur…
Kjörfundur í Hafnarfirði vegna forsetakosninganna 1. júní 2024 hefst kl. 9 og lýkur kl. 22. Kjörstaðir í Hafnarfirði eru Lækjarskóli,…
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbær veitti á dögunum sex styrki úr Húsvendarsjóði. Styrkirnir eru til viðhalds og endurbóta og námu þeir…
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í síðustu viku að lækka gjaldskrár sveitarfélagsins frá og með 1. maí 2024.…
Hver er Ebba Katrín? „Hún er þriggja bræðra systir. Ólst upp í Setbergi í Hafnarfirði, alla mína barnæsku,“ svarar bæjarlistarmaður…
Samfélagslöggur Hafnarfjarðar heimsækja nú 7. bekki í grunnskólum Hafnarfjarðar og veita nemendunum fræðslu um ofbeldi, vopnaburð, einelti og hótanir. Samfélagslöggæsla…