Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Frá haustdögum 2016 hafa sveitarfélögin Árborg, Hafnarfjörður og Reykjanesbær verið í faglegu samstarfi um þýðingu og staðfæringu á stöðumatstæki sem nýtist skólum til að leggja mat á námshæfni, þekkingu og reynslu nemenda af erlendum uppruna á þeirra tungumáli. Í lok ársins 2018 bættist síðan Fellaskóli í Reykjavík inn í samstarfið.
Þrjú sveitarfélög bjóða öllum skólum landsins nýtt matstæki þeim að kostnaðarlausu
Stöðumatið er hýst á vefsíðu Menntamálastofnunar, en stofnunin tók einnig að sér að sækja um þýðingarréttinn til Skolverket í Svíþjóð. Efnið er öllum opið (Stöðumat fyrir erlenda nemendur | Menntamálastofnun (mms.is) en þar er að finna öll gögn sem þarf til að leggja Stöðumatið fyrir, svo sem kennsluleiðbeiningar, verkefni, skráningargrunna og samantektarskjöl. Þar eru einnig kynningarmyndbönd þar sem saga Stöðumatsins er kynnt, fyrirlögn hvers hluta fyrir sig, hagnýt atriði og niðurstöðu.
Mikil þörf hefur verið fyrir öflugt stöðumatstæki fyrir nemendur af erlendum uppruna hér á landi. Verkefnið miðar að því að byggja á styrkleikum og efla námshæfni nemenda og að bregðast sem fyrst við námsþörfum hvers og eins með snemmtæku mati og markvissri íhlutun á fyrstu stigum skólagöngunnar í nýju landi. Lögð er áhersla á að líta á Stöðumatið sem matstæki ekki próf og skiptist matið í þrjú stig:
Styðja skólana í að staðsetja nemendur hvað varðar fyrri þekkingu og reynslu. Niðurstöður matsins auðvelda skólunum að skipuleggja nám nemandans út frá styrkleikum hans og þörfum. Kanna fyrri þekkingu og reynslu nemandans, t.d. varðandi tungumálakunnáttu, skólagöngu, styrkleika o.fl.
Mat sem kannar lestrarfærni og talnaskilning nemandans á hans eigin móðurmáli.
Kanna kunnáttu nemandans í faggreinum skólans s.s. ensku, sögu, líffræði, stærðfræði o.fl. Gefur vísbendingar um fyrri kunnáttu nemandans og grundvöll til að skipuleggja nám og kennslu við hæfi. Þessi faggreinahluti er í vinnslu að hluta.
Stýrihópur hefur leitt þessa mikilvægu þróunarvinnu en eftirtaldir skipa hópinn. Frá Árborg: Aneta Figlarska, ráðgjafi í kennslu barna af erlendum uppruna, Hrund Harðardóttir, kennsluráðgjafi og Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri. Frá Hafnarfirði: Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri, Kristrún Sigurjónsdóttir, kennsluráðgjafi fjölmenningar og Þórdís Helga Ólafsdóttir, fyrrv. sérkennslufulltrúi grunnskóla, nú kennari í Borgarholtsskóla. Frá Reykjanesbæ: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri í íslensku sem öðru máli, Helgi Arnarson, sviðsstjóri og Kolfinna Njálsdóttir, deildarstjóri skólaþjónustu .
Stöðumatsverkefnið hefur fengið styrki úr Sprotasjóði og í kjölfar námskeiða, sem stýrihópurinn hefur staðið fyrir, hefur Stöðumatið verið tekið í notkun í mörgum skólum hér á landi, svo sem í Árborg, Hafnarfirði, Reykjanesbæ og Reykjavík. Fleiri sveitarfélög sem eru að stíga fyrstu skrefin hafa fengið námskeið í innleiðingu. Tveir framhaldsskólar, Borgarholtsskóli og Fjölbrautarskóli Suðurlands, eru farnir að nýta Stöðumatið, og fleiri eru að huga að innleiðingu þess enda eru sóknarfæri á því skólastigi.
Sjá einnig frétt um stöðumati á vef Mennta- og menningarmálaráðuneytisins
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…