Björk er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2019
Fjöllistakonan Björk Jakobsdóttir hlaut í dag titilinn bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2019. Björk hefur í gegnum tíðina sinnt fjölbreyttum hlutverkum og starfað meðal annars sem leikkona, leikstjóri, framleiðandi, leikskáld og uppistandari.
Fjöllistakonan Björk
Jakobsdóttir hlaut í dag titilinn bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2019. Björk
hefur í gegnum tíðina sinnt fjölbreyttum hlutverkum og starfað meðal annars sem
leikkona, leikstjóri, framleiðandi, leikskáld og uppistandari. Bæjarstjóri
Hafnarfjarðarbæjar, Rósa Guðbjartsdóttir, veitti viðurkenninguna við hátíðlega
athöfn í Hafnarborg í dag á síðasta degi vetrar. Athöfnin er liður í hátíðinni
Björtum Dögum sem stendur yfir í Hafnarfirði til sunnudags.
Bæjarlistamaður ársins í ár hefur lagt mikið af mörkum til
að efla menningarlífið í Hafnarfirði og unnið meðal annars með ungu fólki að
verkefnum sem hafa vakið mikla athygli. „Hjartað slær í Hafnarfirði“ sagði
Björk þegar hún tók hrærð og stolt við viðurkenningunni. Þakkaði hún
Hafnfirðingum fyrir tilnefninguna og samferðafólki sína fyrir öll ævintýrin á
tæplega 30 ára starfsævi og þá ekki síst þeim ungmennum sem í dag skipa, að
hennar mati, unglingalandslið í sviðslistum. „Það eflir sjálfsmynd allra unglinga að eiga hóp af frábæru ungu
listafólki sem leiðir leik og tónlistarsenu framtíðarinnar á Íslandi. Þessir
krakkar eru líklegir til að taka forystu í félagsmálum og skapandi störfum.
Þetta eru þeir krakkar sem vinna með skóla við að skemmta börnum og unglingum
með því að skapa tónlist, myndbönd, skemmtiþætti og leikrit. Það er mikilvægt
fyrir börn og unglinga að eiga sterkar og jákvæðar fyrirmyndir“ segir Björk
stolt.
Björk hefur, allt frá útskrift úr leiklistarskóla Íslands
árið 1993, starfað að leiklistarmálum á Íslandi með höfuðstöðvar í Hafnarfirði.
Strax eftir útskrift stofnaði hún, ásamt fleirum, Hafnarfjarðarleikhúsið í
gamla frystihúsinu á Norðurbakkanum. Þar var rekið öflugt leikhús sem sérhæfði
sig í nýjum íslenskum verkum eins og Himnaríki eftir Árna Ibsen sem vakti mikla
athygli á sínum tíma. Árin eftir 2005, eftir sýningar á metsölustykkinu
Sellófon þar sem Björk fór yfir líf nútímakonunnar, vann hún mest erlendis við
að leikstýra Sellófon í hinum ýmsu löndum Evrópu. Árið 2010 stofnaði Björk,
ásamt fleirum, Gaflaraleikhúsið sem hefur nú aðsetur við Víkingastræti í
Hafnarfirði. Þar hefur hún síðustu 10 árin stýrt fjölda nýrra íslenskra
leikverka. Vinna hennar með ungmennum hefur vakið verðskuldaða athygli og gert
það að verkum að unglingar landsins flykkjast nú í Gaflaraleikhúsið í
þúsundatali. Björk hefur einnig verið vítamínsprautan í endurvakningu á blómlegu leiklistarlífi í Flensborgarskólanum
samhliða því að bjóða unglingadeildum í grunnskólum Hafnarfjarðar upp á vandaða
og öfluga kennslu í skapandi listum. Mamma Klikk eftir Gunnar Helgason í
leikstjórn Bjarkar er væntanlegt til sýninga í haust í Gaflaraleikhúsinu en
þegar hafa sýningar eins og Unglingurinn, Konubörn, Bakaraofninn, Stefán rís og
Blakkát notið mikilla vinsælda.
„Það á vel við að leiða
saman listina og vorið með því að tilkynna bæjarlistamann Hafnarfjarðar 2019 í
dag á síðasta vetrardegi enda fylgir bjartsýni, gróska og kraftur bæði listinni
og vorinu. Fyrir hönd Hafnfirðinga þakka ég Björk fyrir óeigingjarnt og frábært
starf og vona að nafnbótin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2019 sé hvatning
til áframhaldandi góðra verka fyrir Hafnarfjörð og sérstaklega unga fólkið
okkar. Það er hverju bæjarfélagi mikilvægt að eiga fólk eins og Björk,
einstaklinga sem með óeigingjörnu starfi og af ástríðu leggja sitt af mörkum til að
menningarlífið megi blómstra og vökva vaxtarsprotana og stuðla þar með að betra
samfélagi og bjartari framtíð“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í
ræðu sinni við afhendingu á viðurkenningunni. Við val á bæjarlistamanni
Hafnarfjarðar er kallað eftir tilnefningum bæjarbúa og árlega berst fjöldi
tilnefninga sem sýnir glöggt þann kraft og þá grósku sem ríkir í hafnfirsku
samfélagi.
Þeir sem hlotið hafa
nafnbótina bæjarlistamaður Hafnarfjarðar í gegnum árin eru:
- 2005 Sigrún
Guðjónsdóttir (Rúna), myndlistarmaður - 2006 Elín
Ósk Óskarsdóttir, söngkona - 2007 Jónína
Guðnadóttir, myndlistarmaður - 2008 Sigurður
Sigurjónsson, leikari - 2009 Jóhanna
Guðrún Jónsdóttir, söngkona - Ekki
voru útnefndir bæjarlistamenn á árunum 2010 til 2013 - 2014 Andrés
Þór Gunnlaugsson, tónlistarmaður - Ekki
voru útnefndir bæjarlistamenn á árunum 2015 til 2016 - 2017 Steingrímur
Eyfjörð, myndlistarmaður - 2018 Björgvin
Halldórsson, tónlistarmaður