Breytingar á akstursþjónustu

Fréttir

Öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, utan Kópavogs, hafa gert með sér samkomulag um sameiginlega akstursþjónustu fatlaðs fólks og aldraðra.

Öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, utan Kópavogs, hafa gert með sér samkomulag um sameiginlega akstursþjónustu fatlaðs fólks og aldraðra. Á grundvelli þess var Strætó falið að reka þjónustuna frá og með áramótunum, en Strætó hefur rekið hana í Reykjavík frá árinu 2001.

Aukið öryggi og sveigjanleiki

Markmið Strætó er að tryggja notendum akstursþjónustunnar bæði sveigjanlegri og öruggari þjónustu en þeir hafa áður fengið. Aukinn sveigjanleiki felst meðal annars í því að nú geta notendur pantað ferðir með tveggja klukkustunda fyrirvara í stað eins sólarhrings áður. Þjónustuverið verður opið mun lengur en áður, eða meðan ökutæki fyrirtækisins eru í akstri. Aukið öryggi notenda verður m.a. tryggt með endurnýjun ökutækja akstursþjónustunnar auk þess sem á þeim verða gerðar reglubundnar gæða- og öryggisúttektir.

Gott samstarf lykilatriði

Akstursþjónustuna er umfangsmikil og mikilvæg þjónusta sem snertir marga og því er

góð samvinna og samráð við hagsmunasamtök notenda afar mikilvægt til að tryggja farsæla framkvæmd þjónustunnar. Skipaður hefur verið samráðshópur með fulltrúum frá sveitarfélögunum, Strætó, notendum og þeim sem annast aksturinn. Hlutverk hópsins er að fylgjast með framkvæmdinni og koma með ábendingar um það sem betur má fara. Strætó hvetur einnig notendur til þess að koma á framfæri athugasemdum sínum og ábendingum með símtali í þjónustuver (540 27 00), tölvupósti (thjonustuver@straeto.is) eða í gegnum vefsíðu Strætó (www.straeto.is). Allar ábendingar og athugasemdir eru skráðar og unnið úr þeim eins fljótt og kostur er.

Ábyrgð á þjónustunni

Samkvæmt samkomulagi sveitarfélaganna er ábyrgð á akstursþjónustunni tvískipt: Félagsþjónusta hvers sveitarfélags ákvarðar hverjum er heimilt að nota þjónustuna, ákveður fjölda ferða á hvern notenda og hvaða þjónustu notandinn á rétt á. Ábyrgð Strætó felst í að framkvæmd akstursþjónustunnar sé í samræmi við ákvarðanir sveitarfélaganna.

Nánari upplýsingar

Upplýsingabæklingur Strætó um akstursþjónustuna á höfuðborgarsvæðinu er aðgengilegur á Þjónustumiðstöðum Reykjavíkurborgar, þjónustuverum Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness auk þess sem hann er að finna á heimasíðu Strætó.

 

Ábendingagátt