Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja í frábærar verslanir á Strandgötunni. Alice Clarke rekur Tíru svo eftir er tekið.
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja í frábærar verslanir á Strandgötunni.
Tíra hefur staðið við Strandgötu frá því í febrúar. Þar ræður Alice Olivia Clarke ríkjum. Hún hannar og framleiðir vörur sínar, sem hún selur einnig meðal annars í Epal og í verslun Þjóðminjasafnsins. Endurskin einkennir vörurnar og þær ljóma. Tíra ber nafnið frá ljóstýru.
„Ég hef hannað undir merkjum Tíru frá árinu 2008. Endurskin er í öllu og því blandað í íslenska ull.“ Ullin er handgerð á Íslandi og hún nýtir einnig tvít frá Kormáki og Skyldi í slá sem hún hannar listilega og blandar íslenskri og merino-ull. Sjón er sögu ríkari. Vettlingar með endurskini, húfur sem lýsa upp við ljós, skóreimar, endurskinsmerki og svo margt fleira.
„Ég hanna bæði ein og í samvinnu við aðra, því það er svo skemmtilegt að fá annað sjónarhorn á verk sín,“ segir Alice sem selur einnig frá öðrum hönnuðum.
„Ég hef verið svo lengi í þessum bransa og kynnst skemmtilegum fólki á sýningum og víðar. Það fréttist út að ég sé með búð og það kemur til mín,“ segir Alice og nefnir að samstarfið við aðrar hönnunarverslanir í Strandgötu sé gott. Þau bendi hvert á annað þegar viðskiptavinir komi í leit að tilteknum vörum.
„Það er frábært,“ segir hún. Það styrki hönnunarverslanirnar að vera fleiri í Hafnarfirði.
Alice býr stutt frá búðinni og tók því fagnandi þegar rýmið opnaði. „Ég bý aðeins 100 skrefum frá,“ segir hún. „Þetta er mjög, mjög þægilegt,“ segir hún og hlær. Hún er frá Kanada en hefur búið rúm 30 ár á Íslandi.
„Ég kom fyrst í heimsókn 22 ára en flutti ári síðar.“ Spurð hvað heillaði við Ísland hlær hún og svarar: „Þú meinar: Hvað heitir hann?“
Ástin dró hana til Íslands en hún kynntist Kára Einarssyni arkitekt þegar hann var í námi í Ottawa í Kanada. „Akkúrat á fimmtudag voru 34 ár síðan við hittumst.“ Ísland er orðið heim fyrir Alice.
„Og svo kemur fólkið mitt í heimsókn,“ segir Alice. „Þetta er ekki eins erfitt og fyrir þrjátíu árum. Það er svo auðvelt að halda tengslum í dag, tala við fólkið og sjá það þegar það talar við mann. Nú sendi ég ekkert fax,“ segir hún og hlær.
Já, það er yndislegt að kíkja í verslanirnar á Strandgötu.
Opnunartími Tíru fylgir Jólaþorpinu.
Frisbígolffélag Hafnarfjarðar í samstarfið við Folfdiskar.is færði í gær Hafnarfjarðarbæ 13 frisbígolfskörfur og hundruð diska til að stunda frísbígolf innandyra…
Yfir 100 íbúðir og verslanir á jarðhæð verða við Reykjavíkurveg 60-62. Framkvæmdir eru hafnar við uppbyggingu nýs Hrauns vestur og…
„Áttu erlendan vin eða erlendan nágranna sem er nýfluttur í bæinn?“ spyrja brúarsmiðir Hafnarfjarðarbæjar sem hjálpa foreldrum af erlendum uppruna…
Hafnarfjarðarbær hlaut í gær nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2025. Bærinn hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í opinberri nýsköpun með leiðandi umbótastarfi…
Hvað gerir bæjarstjóri? spurðu elstu börnin í Hlíðarendaleikskóla þegar þau heimsóttu Valdimar Víðisson bæjarstjóra nú í morgun. Börnin komu með…
„Ég hvet því íbúa Hafnarfjarðar til þess að fara inn á heimasíðu UNICEF þar sem hægt er að sækja sér…
Aldrei hafa fleiri sótt um í Verkhernum og í ár. Verkherinn er atvinnuúrræði fyrir hafnfirsk ungmenni með skerta starfsgetu. Verkherinn…
Leikskólinn Hörðuvellir fagnaði 90 ára afmæli í dag, föstudag. Börnin sungu og stjórnendur rifjuðu upp söguna. „Leikskólinn Hörðuvellir hefur verið…
Fjöldi hafnfirskra fyrirtækja kynntu starfsemi sína á ráðstefnuni HITTUMST í Hafnarhúsinu í gær. Bæjarstjórinn kíkti við ásamt stjórum nágrannasveitarfélaganna.
Hafnarfjarðarbær og GETA hjálparsamtök hafa aftur tekið höndum saman og bjóða fjölskyldum í Hafnarfirði að taka þátt í að rækta…