Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Varfærnar breytingar verða á grunnskólastarfi frá mánudeginum 23. nóvember og gilda þær til og með 1. desember nk. Við nýjar breytingar er áhersla lögð á að stíga varlega til jarðar og fara aðeins í aðgerðir eða breytingar sem tala í takti við sóttvarnarreglur heilbrigðisyfirvalda. Framkvæmdin er samræmd fyrir grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar.
Varfærnar breytingar á grunnskólastarfi verða frá mánudeginum 23. nóvember sem gilda til og með 1. desember nk. Við nýjar breytingar er áhersla lögð á að stíga varlega til jarðar og fara aðeins í aðgerðir eða breytingar sem tala í takti við sóttvarnarreglur heilbrigðisyfirvalda. Framkvæmdin er samræmd fyrir grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar.
Eftir yfirlegu skólastjórnenda og fræðsluyfirvalda í Hafnarfirði á nýrri reglugerð sóttvarnayfirvalda er það niðurstaðan að viðhafa í meginatriðum sama skipulag áfram til 1. desember og verið hefur í grunnskólunum allan nóvembermánuð.
Það hefur verið okkur mikilvægt að geta haldið úti matarþjónustu fyrir nemendur við þessar skerðingar á skólastarfi en það verkefni hefur ekki verið án áskorana. Þar hefur samvinna við Skólamat verið til fyrirmyndar þrátt fyrir erfiðar aðstæður fyrir fyrirtækið. Þannig var tekið upp á að afhenda nemendum hádegismat í einnota bökkum inni í kennslustofum en það bauð ekki upp á sömu gæði og afhending matar í matsal og jók bæði matseldina og matarsóun auk annarra flækjustiga. Nú er sú staða uppi að ekki fást lengur matarbakkar á landinu til að halda þessari framkvæmd áfram. Því hefur verið tekin sú ákvörðun að taka matsalina aftur í notkun en með breyttri framkvæmd, þ.e. hólfun og afhendingu hádegismatar yfir lengri tíma en áður sökum minni hópa í salnum hverju sinni. Ef einstaka skólar geta ekki komið öllum nemendum sem eiga pantaðan hádegismat í matsal, eða geta sótt hann þar og farið með í kennslustofur, munu elstu nemendur sumra skóla fá einfaldari mat, þ.e. samloku, vefju, pasta o.þ.h., í stofur sem sinn hádegisverð. Þetta er ekki ákjósanlegasta staðan en virðist vera eini framkvæmanlegi möguleikinn í þeirri viðleitni að færa öllum nemendum sem eru í áskrift matinn sinn og þurfa ekki að fella hann niður. Hver skóli mun kynna fyrirkomulagið nánar fyrir foreldrum.
Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar þakkar öllum hlutaðeigandi og þá ekki síst nemendum og forráðamönnum sýndan skilning og þolinmæði gagnvart stöðugum breytingum og aðlögun að nýjum aðstæðum.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…