Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Mat á skólastarfi er virkur þáttur í starfi grunnskólanna og mikilvægt innlegg í þróun skólastarfsins og mörkun umbótaverkefna innan hvers skóla. Nú liggja fyrir niðurstöður viðhorfskannana Skúlapúlsins 2020.
Faglegt og gott grunnskólastarf kallar á öflugt samstarf allra hlutaðeigandi
Mat á skólastarfi er virkur þáttur í starfi grunnskólanna og mikilvægt innlegg í þróun skólastarfsins og mörkun umbótaverkefna innan hvers skóla.
Nú liggur fyrir skýrsla Skólavogar sem byggir á niðurstöðum viðhorfskannana sem lagðar voru fyrir nemendur og starfsfólk allra grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar skólaárið 2019-2020. Nemendakönnun var lögð fyrir á tímabilinu ágúst 2019 – júní 2020 og könnun fyrir starfsfólk í mars og apríl 2020. Í ár var ekki lögð könnun fyrir yngri nemendur vegna Covid19. Niðurstöður gefa bæði ákveðnar vísbendingar um það sem vel er gert og um viðfangsefni og verkefni sem þörf er á að sinna til að efla skólastarfið og vinna að frekari skólaþróun. Grunnskólar Hafnarfjarðar voru á þessum tímapunkti 8 talsins (9 í dag með sjálfstæði Engidalsskóla). Börn á grunnskólaaldri með lögheimili í bænum voru 4.317 skólaárið 2019 til 2020. Þar af eru 4.062 í grunnskólum sveitarfélagsins eða um 94,1%.
Skýrsla Skólavogar var kynnt á fundi fræðsluráðs Hafnarfjarðar í gær. Sjá niðurstöður fyrir grunnskóla Hafnarfjarðar skólaárið 2019-2020. Á bls. 44-48 er að finna samantekt á niðurstöðum úr báðum könnunum.
Niðurstöður nemendakönnunar í 6. -10. bekk eru við meðaltal í öllum þáttunum. Þannig leggja hafnfirskir nemendur gott mat á eigin þrautseigju í námi sem skilar 7. sæti af 40 og er Hafnarfjarðarbær meðal þeirra 25% sveitarfélaga sem eru með hvað hagstæðustu niðurstöðuna í þessum þætti. Trú á eigin vinnubrögðum í námi og trú á eigin námsgetu er einnig meðal þeirra 25% sveitarfélaga sem eru með hvað hagstæðustu niðurstöðurnar. Vellíðan meta nemendur til meðaltals. Þegar skoðað er hvernig nemendur meta ánægju sína af lestri þá fer sú ánægja minnkandi með aldrinum. Tíðni eineltis meta nemendur jafnframt háa – frá 7% þar sem matið er lægst og 18,2% þar sem matið er hæst. Þannig má leiða lyktum að því að nemendum í 6. – 10. bekk líði nokkuð vel og hafi gott sjálfstraust og trú á eigin getu. Full ástæða þykir til að gaumgæfa og vinna sérstaklega með niðurstöður er varða minnkandi ánægju af lestri og einelti.
Nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar ná auknum árangri í samræmdum prófum á skólaárinu 2019-2020. Það sýnir sig bæði sem bæting þeirra, sem hópur, gagnvart sjálfum sér (frá síðasta samræmda prófi) og miðað við jafnaldra sína á landinu á sama tíma. Þetta á sérstaklega við nemendur í 7. bekkjum sem sýna miklar framfarir miðað við sjálfa sig (frá 4. bekk) og jafnaldra í 7. bekk. Í 4. bekk sjást framfarir (miðað við fyrri árganga í Hafnarfirði) og í 9. bekk eru áþekkar niðurstöður og áður. Niðurstöður endurspegla það sem tekið hefur verið eftir í hafnfirskum grunnskólum, þ.e. virðisauki er í skólastarfinu þannig að hafnfirskir nemendur bæta stöðu sína í samanburði við jafnaldra á landinu frá því að þeir hefja grunnskólanám og þar til þeir ljúka því.
Starfsmannakönnunin 2020 er töluvert frábrugðin því sem hún hefur verið þannig að samanburður milli ára er ekki mögulegur nema hvað varðar ákveðnar spurningar. Niðurstöður eru við meðaltal í 26 samanburðarþáttum af 28. Hafnarfjarðarbær er í tveimur þáttum meðal þeirra 25% sveitarfélaga sem fengu hagstæðustu niðurstöður en það er annars vegar samráð um kennslu og snýr hins vegar að hlutfalli kennara sem sóttu símenntun í fleiri en tíu daga undanfarið ár. Tveir þættir eru vel fyrir neðan meðaltal; gagnsemi starfsmannaviðtala og samvinna um kennslu og er Hafnarfjarðarbær jafnframt í hópi þeirra 25% sveitarfélaga sem eru með óhagstæðasta útkomu í þáttum sem snúa að vinnuálagi, jákvæðum áskorunum í starfi, skörun vinnu og einkalífs, stuðningi frá næsta yfirmanni, stuðningi við kennara varðandi nemendur með náms- og hegðunarerfiðleika, faglegum stuðningi skólastjóra við kennara og samvinnu um kennslu. Samkvæmt þessum niðurstöðum þá eru töluverð tækifæri til úrbóta meðal starfsmanna í grunnskólum Hafnarfjarðar. Slíkar úrbætur kalla á öflugt og gott samstarf allra hlutaðeigandi aðila; sveitarfélags, skóla/starfsfólks, foreldra og nemenda. Skólastarfið er flókið og þarf oft á tíðum að takast á við margbrotin samfélagsleg verkefni og áskoranir þar sem umhverfi skólans er ekki síður áhrifavaldur. Þessi skýrsla er góður leiðarvísir um þætti sem nauðsynlegt er að vinna sérstaklega með.
Skýrslu þessari er fyrst og fremst ætlað að vera upplýsandi fyrir stjórnendur og starfsfólk grunnskóla og jafnframt veita fræðsluyfirvöldum nauðsynlegar upplýsingar um ákveðna þætti skólastarfsins í bænum. Skólapúlsinn, sem liður í innra mati, hentar vel til að fá álit þeirra sem koma að skólastarfinu og mikilvægt er að gaumgæfa þau sjónarmið og viðhorf sem þar koma fram. Tilgangurinn er að skólarnir geti nýtt niðurstöður og samanburð til að sjá hvað vel tekst til og finna sér sóknarfæri og umbótaverkefni. Einnig að aðrir hagsmunaaðilar skólastarfsins, s.s. foreldrar og fræðsluyfirvöld, fái yfirsýn yfir stöðuna og geti lagt sitt af mörkum lögum samkvæmt til að aðstoða skólanna á grundvelli gagna.
Sjá niðurstöður Skólavogar fyrir grunnskóla Hafnarfjarðar skólaárið 2019-2020.
Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum…
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í…
Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 23. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2025. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum…
Hafnarfjarðarbær hefur svo gott sem lokið við LED-ljósavæðingu götulýsingar bæjarfélagsins. 95% ljósastaura nota LED-lýsingu. Víða í stofnunum bæjarins hefur LED-lýsing…