Fasteignagjöld 2021 – álagningarseðlar aðgengilegir

Fréttir

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2021 eru nú aðgengilegir á Mínum síðum og á island.is. Á seðlunum koma fram fjárhæðir fasteignaskatts, lóðarleigu, vatns-, fráveitu- og sorphirðugjalds. Einnig kemur fram fasteignamat og upplýsingar um eigendur og greiðendur gjaldanna.

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2021 eru nú aðgengilegir á
Mínum síðum og á island.is . Á seðlunum koma fram fjárhæðir fasteignaskatts,
lóðarleigu, vatns-, fráveitu- og sorphirðugjalds. Einnig kemur fram
fasteignamat og upplýsingar um eigendur og greiðendur gjaldanna.

Tíu gjalddagar yfir árið – eindagi 30 dögum eftir
gjalddaga

Gjalddagar fasteignagjalda í Hafnarfirði árið 2021 eru tíu.
Fyrsti gjalddaginn er 1. febrúar og síðan fyrsta hvers mánaðar til 1.
nóvember. Í þeim tilvikum sem heildarupphæð fasteignagjalda ársins er kr.
25.000 eða lægri er öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga ársins þann 1.
febrúar. Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga.

Lækkun eða niðurfelling á fasteignaskatti elli- og
örorkulífeyrisþega

Í upphafi árs hefur elli- og örorkulífeyrisþegum verið veitt
lækkun eða niðurfelling á fasteignaskatti samkvæmt reglum um viðmiðunarfjárhæð
tekna samkvæmt skattframtali fyrra árs, nú 2020. Skilyrði lækkunar eða
niðurfellingar er að um sé að ræða eigið húsnæði þar sem greiðandi á
lögheimili. Afsláttur fasteignaskatts er endurreiknaður þegar skattframtal 2021
er staðfest hjá Ríkisskattstjóra.

Við erum eingöngu rafræn! Seðlar ekki lengur á pappírsformi

Fasteignagjöldin eru til innheimtu í heimabönkum. Greiðslu-
og álagningarseðlar fasteignagjalda eru nú einungis birtir rafrænt og ekki lengur sendir út í pappírsformi. Hægt
er að nálgast álagningarseðlana á Mínum síðum og island.is

Allar nánari upplýsingar veitir þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar
í s. 585-5500, í gegnum netspjall á www.hafnarfjordur.is
eða í gegnum netfangið: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is

Ábendingagátt