Flokkur: Fréttir

Tími til að lesa: Setjum fyrsta heimsmetið í lestri

Ræktum lesandann og setjum fyrsta heimsmetið í lestri Mennta- og menningarmálaráðuneytið hleypti þann 1. apríl af stokkunum lestrarverkefni fyrir þjóðina, þar sem börn og fullorðnir eru hvött til að nýta til lesturs þann tíma sem gefst við núverandi aðstæður. Við hvetjum Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til virkrar þátttöku Lestur er sérstaklega mikilvægur fyrir börn, enda […]

Hundruð íbúða rísa í Hamranesi

,,viðtökur lóðaúthlutunar afar jákvæðar fréttir inn í hafnfirskt samfélag“ segir bæjarstjóri. Hafnarfjarðarbær óskaði á haustmánuðum 2019 eftir áhugasömum þróunaraðilum til þátttöku í uppbyggingu byggðar á fjórum reitum í fyrsta áfanga Hamraness í Hafnarfirði. Alls bárust 11 umsóknir. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar staðfesti, á fundi sínum sl. miðvikudag, tillögu bæjarráðs um úthlutun reitanna til fjögurra hópa sem samsettir […]

Fjölbreytt virkni bæjarbúa í samkomubanni

Nú eru tæpar þrjár vikur liðnar af samkomubanni vegna covid19 og hjá Hafnarfjarðarbæ leitar starfsfólk bæjarins leiða til að miðla heilsueflandi hugmyndum og viðburðum sem voru skipulagðir heim í stofu í gegnum samfélagsmiðla. Að sögn Andra Ómarssonar viðburðastjóra hafa íbúar verið sérstaklega duglegir að hreyfa sig og njóta útivistar síðustu daga og vikur. Bæjarblaðið Hafnfirðingur […]

Samkomubann framlengt til að hefta útbreiðslu Covid19

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja til 4. maí þær takmarkanir á samkomum og skólahaldi sem áttu að falla úr gildi 13. apríl næstkomandi. Ákvörðunin er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Þótt vel hafi gengið að halda útbreiðslu smita í skefjum veldur áhyggjum hve alvarlega veikum einstaklingum sem þurfa á gjörgæslu að halda hefur […]

Gjafabréf á góða skemmtun í hjarta Hafnarfjarðar

Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar hefur síðustu daga og vikur lagst á eitt í því mikilvæga verkefni að halda úti þjónustu sveitarfélagsins sem verður að haldast órofin á öllum viðbúnaðarstigum almannavarna. Þannig hefur mannauðurinn fetað saman óþekktan veg nýrra áskorana sem kallað hafa á endurskoðun og uppstokkun á veittri þjónustu og sveigjanleika í starfi starfsfólks sem mætt hefur […]

Auglýst eftir umsóknum um sex fjölbýlislóðir í Hamranesi

Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar 8. apríl 2020 var samþykkt að auglýsa lausar til úthlutunar sex lóðir undir þriggja til fimm hæða fjölbýlishús með 148 íbúðum í Hamranesi, nýju íbúðarsvæði sunnan við Ásvallabraut sem tengir svæðið við helstu stofnleiðir og er jafnframt skammt frá stoppistöð almenningsvagna. Engin byggð er á svæðinu í dag en þar mun […]

Covid19 – hvað má og hvað ekki?

Á þessu upplýsingaspjaldi eru skýrar myndrænar leiðbeiningar um hvað má og má ekki gera meðan Covid19 faraldurinn gengur yfir.  Við erum ÖLL almannavarnir Það er afar mikilvægt að allir séu með reglurnar á hreinu og fari eftir þeim til fækka smitum. Þarna er sett fram með einföldum hætti hvað má gera eftir því hvaða hópi […]

Aðgerðir Hafnarfjarðarbæjar vegna Covid19 samþykktar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti einróma í dag aðgerðaáætlun til þess að bregðast við afleiðingum COVID-19 faraldursins. Áætlunin er í 11 liðum þar sem heilsa og velferð íbúa og starfsfólks Hafnarfjarðarbæjar er sett í forgang, samhliða því sem brugðist er við efnahagslegum áhrifum faraldursins á íbúa, félög og fyrirtæki, auk sveitarfélagsins sjálfs. Sjá aðgerðaáætlun bæjarstjórnar Hafnarfjarðarbæjar vegna […]

Við erum ÖLL barnavernd. Leyfum okkur að vera forvitin

Barnavernd er dæmi um þjónustu sveitarfélagsins sem þarf að haldast órofin á öllum viðbúnaðarstigum almannavarna. Barnavernd er samstarfsverkefni allra þeirra sem vinna með börnum og hins almenna borgara sem oft á tíðum er í betri aðstöðu til að fylgjast með aðstæðum barna og tilkynna til barnaverndar ef það er eitthvað í umhverfi eða umgjörð barna […]

Frestun fasteignagjalda á íbúða- og atvinnuhúsnæði

– sveitarfélögin í Kraganum leggja fram samræmda tillögu   Sveitarfélögin Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnes munu leggja fram tillögu, í bæjarráðum eða bæjarstjórnum sveitarfélaganna í vikunni, um frestun fasteignaskatta og fasteignagjalda á eigendur íbúða- og atvinnuhúsnæðis. Tillagan gerir ráð fyrir að gjalddögum ársins verði fjölgað eða frestað á árinu, (eftir því sem við á […]