Iðandi mannlíf einkennir hafnarsvæði víða um heim. Fjölbreytt atvinnulíf og ýmis þjónusta laða að sé fólk á öllum tímum dagsins allt árið. Flensborgarhöfn á sér langa sögu en nú stendur yfir undirbúningsvinna vegna nýs skipulags á svæðinu við smábátahöfnina sem er skilgreint sem blanda af hafnarsvæði og verslunar- og þjónustusvæði. Í Sverrissal verður komið fyrir […]
Flokkur: Fréttir
Allar stofnanir bæjarins lokaðar frá hádegi þann 19.júní
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 24. apríl að starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar verði gefið frí frá hádegi 19. júní 2015 í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar íslenskra kvenna. Skipulögð hátíðahöld eru áformuð viða um land þennan dag og með því að gefa frí er starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar gefinn kostur á að taka þátt í þeim. Stofnanir […]
Týndu rusl í miðbænum og á Völlunum
Í morgunn fóru starfsmenn bæjarins í ráðhúsinu og á Norðurhellunni út og týndu rusl í miðbænum og á Völlunum. Hreinsunarátakið í morgunn er hluti af hreinsunardögum bæjarins sem nú standa yfir. Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðar eru á ferðinni um bæinn og hirða garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk. Það voru fjölmargir svartir plastpokar sem […]
Sameiginlegt átak gegn heimilisofbeldi
Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, og Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um átak gegn heimilisofbeldi. Í yfirlýsingunni felst að frá og með mánudeginum 18. maí taka velferðasvið sveitarfélaganna og lögreglan upp nýjar verklagsreglur sem tryggja eiga markvissari viðbrögð og úrræði gegn […]
Bæjarstjórnarfundur í dag
Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 13.maí l 14.00. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.
Nýr skólastjóri Hvaleyrarskóla
Kristinn Guðlaugsson hefur verið ráðinn skólastjóri við Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði frá og með 1. ágúst 2015. Kristinn er fæddur í Hafnarfirði 1968 og gekk í Öldutúnsskóla og lauk síðar stúdentsprófi frá Flensborgarskóla. Hann lauk íþróttakennaraprófi frá Laugarvatni og framhaldsnámi við Íþróttaháskóla Noregs 1994. Árið 2000 tók Kristinn diplómu í tölvu- og upplýsingatækni við KHÍ og […]
Hörðuvellir 80 ára
Leikskólinn Hörðuvellir, við Lækinn í Hafnarfirði, fagnar 80 ára afmæli í ár og í því tilefni var haldin afmælishátíð í skólanum í dag. Skólinn tók til starfa árið 1935 en tvö ár þar á undan fór þar fram sumarstarfsemi. Upphaflega var skólinn stofnaður af verkakonum í bænum. Börn og starfsfólk skólans höfðu undirbúið margt í […]
Foreldrar ánægðir með frístundaheimilin
Í nýrri viðhorfskönnun meðal foreldra barna á frístundaheimilum í Hafnarfirði sem gerð var nú í mars, kemur fram aukin ánægja sem starfsemina. Um 750 börn eru á frístundaheimilum bæjarins og bárust svör frá 259 foreldrum. Foreldrar voru spurðir um fjölmarga þætti sem tengjast frístundaheimilum eins og um aðgengi að stjórnendum, hvort þeir fái nægar upplýsingar, […]
Sameiginlegur vilji að efla iðnnám í Hafnarfirði
Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar áttu í gær fund með menntamálaráðherra vegna fyrirhugaðrar sameiningar Iðnskólans í Hafnarfirði við Tækniskólann. Í samtali við Rúv í gærkvöldi sagði Guðlaug Kristjánsdóttir forseti bæjarstjórnar “ að á fundinum hafi komið fram sameiginlegur vilji beggja að efla og varðveita iðnkennslu í Hafnarfirði. Ákveðið var að skipaverkefnahóp til að vinna áfram að málinu.“ Stjórn […]
Grænupplagt !
Nú er rétti tíminn fyrir garða- og lóðahreinsun. Dagana 18. til og með 20.maí munu starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðar fara um bæinn og hirða garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk. Vinsamlegast athugið að setja ekki of mikið í pokana svo þeir verði hvorki of þungir eða geti rifnað. Að hreinsunardögunum loknum þurfa bæjarbúar sjálfir […]