Flokkur: Fréttir

Bæjarstjórnarfundur 10. júní

Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 10. júní kl. 14.00. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.

Verkefnastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar

Magnús Bjarni Baldursson hefur verið ráðinn verkefnastjóri nýrrar Markaðsstofu Hafnarfjarðar til sex mánaða.  Magnús Bjarni var ráðinn úr hópi um fimmtíu umsækjenda. Magnús Bjarni hefur umtalsverða reynslu af markaðsmálum, uppbyggingu vörumerkja, auglýsingamiðlun og stjórnunarstörfum. Að auki hefur hann starfað við háskólakennslu, setið í stjórnum fyrirtækja og var formaður  Sambands íslenskra auglýsingastofa um tíma. Magnús Bjarni […]

Sjómannadagurinn

Sjómannadagurinn er jafnan stór dagur í Hafnarfirði og er hann haldinn fyrsta sunnudag í júní ár hvert. Dagskrá: Kl. 8 Fánar dregnir að húni. Kl. 10 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur við Hrafnistu. Kl. 10.30 Blómsveigur lagður að minnisvarða við Víðistaðakirkju um horfna sjómenn Kl. 11 Sjómannamessa í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Kl. 13-16  Hátíðardagskrá Flensborgarhöfn: Kl. 13-16 […]

Nýr Daggæslufulltrúi

Hrund Guðmundsdóttir hefur verið ráðin nýr daggæslufulltrúi á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar og mun hefja störf 1. ágúst nk.  Hrund er er menntuð sem uppeldisfræðingur (pædagog) frá Holstebro Pædagogseminarium í Danmörku og lauk einnig B.Ed. námi frá Kennaraháskóla Íslands. Í júní á síðasta ári útskrifaðist hún frá Háskóla Íslands með meistaragráðu í mannauðsstjórnun. Hrund hefur víðtæka reynslu […]

Frumkvöðlasetrið Kveikjan flutt í nýtt húsnæði

Frumkvöðlasetrið Kveikjan sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands annast rekstur á í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ og Garðabæ flutti fyrir skemmstu í nýtt húsnæði að Flatahrauni 14 í Hafnarfirði en í því húsnæði hafði slökkvilið Hafnarfjarðar áður aðsetur. Samstarfssamningur Hafnarfjarðarbæjar, Garðabæjar, sveitarfélagsins Álftaness og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um frumkvöðlasetrið Kveikjuna var fyrst undirritaður 1. maí árið 2009. Þá var frumkvöðlasetrið […]

Viðurkenning fræðsluráðs til Hraunvallaskóla

Hraunvallaskóli hlýtur viðurkenningu fræðsluráðs Hafnarfjarðar árið 2015 fyrir nýbreytni og þróunarstarf á unglingastigi skólans. Á síðustu árum hefur skólastarf á unglingastigi skólans verið endurskipulagt og þróað frekar út frá kennslufræði einstaklingsmiðunar með hliðsjón af kennsluaðstæðum (skólahúsnæðinu). Viðurkenning fræðsluráðs hefur það að markmiði að vekja athygli á mikilvægi skólastarfs í samfélaginu og veita einstaka verkefnum viðurkenningu […]

Viðurkenning fræðsluráðs til Víðivalla

Leikskólinn Víðivellir hlýtur viðurkenningu fræðsluráðs árið 2015 fyrir fagmennsku og skólaþróun í skólanum. Í skólanum hefur verið margvíslegt þróunarstarf verið í gangi og skólinn verið í forystu þar á mörgum sviðum. Viðurkenning fræðsluráðs hefur það að markmiði að vekja athygli á mikilvægi skólastarfs í samfélaginu og veita einstaka verkefnum viðurkenningu sem miða að skólaþróun, samvinnu […]

Hraunvallaskóli 10 ára

Í gær var haldið upp á 10 ára afmæli Hraunvallaskóla með hátíð í skólanum í gær. Þar buðu starfsmenn og nemendur skólans gestur og gangandi upp á fjölbreyttar skemmtanir. Haldnar voru þrjár skemmtanir þar sem nemendur komu fram með söng, dansi og ræðuhöldum. Þá var öllum gestum boðið upp á afmælisköku og djús. Starfsfólki skólans, […]

eTwinning kennurum fjölgar í átaki

Þetta skólaár, skólaárið 2014-2015, hefur verið í gangi sérstakt verkefni í Hafnarfirði um að gefa fleiri grunnskólakennurum í bænum tækifæri til að taka virkan þátt í eTwinning verkefni Evrópusambandsins. Áður en verkefnið hófst voru 10,9% kennara í Hafnarfirði skráðir í eTwinning en nú í lok skólaársins voru þeir 18,9%. Fjöldi verkefna með hafnfirskum kennurum var […]

Lækjarskóli sigurvegari íþróttamótsins

Lækjarskóli er sigurvegari í íþróttamóti grunnskólanna í Hafnarfirði skólaárið 2014-2015. Keppnin var haldin í Kaplakrika í ár í maí. Það er breytilegt milli ára hverjar keppnisgreinar eru en í ár voru þær fótbolti, handbolti, bandý og frjálsar íþróttir (langstökk, 400 m hlaup og 200 m boðhlaup). Í hverju keppnisliði er blandað saman stelpum og strákum […]