Á aukafundi í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar í morgun voru samþykktar eftirfarandi breytingar á á stjórnskipulagi Hafnarfjarðarkaupstaðar. Breyting á stjórnskipulagi Hafnarfjarðarkaupstaðar: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir eftirfarandi breytingar á stjórnskipulagi Hafnarfjarðarkaupstaðar. Hjá bænum verða fjögur þjónustusvið og tvö stoðsvið. Þjónustusviðin snúa einkum að þjónustu við bæjarbúa en verkefni stoðsviðanna miða að því að styðja við framkvæmd verkefna á þjónustusviðunum. […]
Flokkur: Fréttir
Bæjarstjórnarfundur 29.júni
Boðað er til aukafundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mánudaginn 29.júní kl.09.15 í Hafnarborg. Dagskrá bæjarstjórnarfundar 29. júní 2015 Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu hér á vef bæjarins.
Úttekt á rekstri og stjórnskipulagi
Capacent hefur unnið úttekt á rekstri og stjórnskipulagi bæjarins. Hér er hægt að nálgast skýrsluna – Úttekt á rekstri og stjórnskipulagi bæjarins, Greiningarhluti“.
Fráveitan – unnið við lagfæringar á Ósnum
Starfsmenn Fráveitu Hafnarfjarðar og kafarar frá Köfunarþjónustunni hf. hafa lokið við það vandasama verk að hreinsa „Ósinn“ miðlunargeymi Fráveitu Hafnarfjarðar. Ástand geymisins var mun lakara en búist hafði verið við en annar tveggja hnífloka í botni hans var fastur og óvirkur. Smíði rörhluta og annarra íhluta er hafin en ljóst er að frágangur þeirra og […]
Greining á fjárhag Hafnarfjarðarkaupstaðar
Á fundi bæjarstjórnar sem nú stendur yfir kynnti bæjarstjóri, Haraldur L. Haraldsson, skýrslu um greiningu á fjárhag Hafnarfjarðarkaupstaðar. Skýrslan, sem er unnin er af bæjarstjóra, er greining á heildarrekstri og fjármálum Hafnarfjarðarkaupstaðar á tímabilinu frá 2002 til 2014. Í skýrslunni kemur fram að fjárhagsvandi Hafnarfjarðarkaupstaðar er tvíþættur. Annars vegar rekstrarvandi, þar sem rekstrarafgangur fyrir óreglulegar […]
Sigurvegarar dorgveiðikeppninnar
Leikjanámskeiðin í Hafnarfirði stóðu fyrir hinni árlegu dorgveiðikeppni við Flensborgarbryggju á miðvikudag. Rúmlega 300 veiðimenn á aldrinum 6-12 ára mættu á bryggjuna og veiddu tæplega 100 fiska. Á færin komu hin ýmsu sjávardýr eins og koli, ufsi, marhnútar og krossfiskur. Hörður Rafnar Auðarson Pálmarsson veiddi einhverskonar burstaorm og fékk verðlaun fyrir furðufiskinn. Aníta Ósk Hilmarsdóttir […]
Dorgveiðikeppni
Miðvikudaginn 24. júní standa leikjanámskeiðin í Hafnarfirði fyrir hinni árlegu dorgveiðikeppni við Flensborgarbryggju. Keppnin er opin öllum börnum á aldrinum sex til tólf ára. Í rúm 20 ár hefur Hafnarfjarðarbær staðið fyrir þessari dorgveiðikeppni og í fyrra tóku rúmlega 300 börn þátt og veiddu tæplega 200 fiska. Sigurvegarinn veiddi fjóra fiska og vó þyngsti fiskur […]
Hjúkrunarheimili á Sólvangssvæðinu
Á fundi fjölskylduráðs sl. föstudag var samþykkt tillaga um að nýtt 60 rýma hjúkrunarheimili, samkvæmt fyrirliggjandi samningi við Velferðarráðuneytið frá árinu 2010, rísi á Sólvangsreitnum. Jafnframt var bæjarstjóra falið að taka upp formlegar viðræður við Velferðarráðuneytið um fjölgun hjúkrunarrýma í bænum enda fyrirliggjandi brýn þörf á frekari uppbyggingu á næstu árum. Samþykkt var að vísa […]
Bæjarstjórnarfundur 24. júní kl. 14.00
Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 24.júní kl. 14.00. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.
Til hamingju með daginn
Skipulögð hátíðarhöld eru áformuð víða um land í dag í tilefni af 100 ára kosningaréttarafmæli kvenna. Starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar verða í fríi eftir í hádegi í dag og gefst þannig kostur á að taka þátt í hátíðarhöldunum. Stofnanir bæjarins verða því lokaðar frá hádegi 19. júní en öll neyðarþjónusta verður til staðar.