Umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðarbæjar vill árétta að ísakstur á Hvaleyrarvatni er EKKI leyfður. Þann 22. janúar 2001 var Vélhjólaíþróttaklúbbnum gefið leyfi fyrir ísakstri á Hvaleyrarvatni með ýmsum takmörkunum. Þessi takmörk voru ekki virt og var því leyfið afturkallað með eftirfarandi bókun umhverfisnefndar þann 12. desember 2006. Mótorcross við Hvaleyrarvatn, hávaðamengun Mál nr. […]
Flokkur: Fréttir
Jólakveðja til þín frá okkur
Bæjarstjórn og starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar senda íbúum og fyrirtækjum í Hafnarfirði hugheilar jóla- og nýárskveðjur með innilegu þakklæti fyrir samtal og samstarf á árinu sem er að líða. Hlökkum til að takast á við ný og spennandi verkefni með ykkur á nýju ári. Saman gerum við Hafnarfjörð að besta bæjarfélaginu! Njótið hátíðanna!
Bóka- og bíóhátíð barnanna
Til stendur að hefja nýtt ár með menningarhátíð fyrir börn í Hafnarfirði þar sem áhersla verður lögð á bækur og kvikmyndir. Tilgangur hátíðarinnar er að efla áhuga barna á lestri og læsi í víðum skilningi og mun hátíðin styðja við læsisverkefni leik- og grunnskóla bæjarins sem í gangi hefur verið síðustu misseri. Börn, bækur og […]
Fræði og fjölmenning – kall eftir ágripum
Opnað hefur verið fyrir skráningu á ráðstefnuna Fræði og fjölmenning 2016. Ráðstefnunni er ætlað að miðla og byggja upp frekari þekkingu á sviði fjölmenningar. Fjallað verður m.a. um það hvernig íslenskt fræða- og fagsamfélag getur unnið nánar saman að aukinni þekkingu á málaflokknum og hvernig Háskóli Íslands getur lagt sitt af mörkum til almennrar samfélags- […]
Jákvæðar breytingar hjá Björkunum
Forsvarsmenn Bjarkanna líta mjög jákvæðum augum á þessa breytingu og sjá nú tækifæri í því að byggja upp enn sterkara íþróttafélag með enn betri þjónustu. Nýr rekstrarsamningur milli sveitarfélags og Bjarkar Nýverið var undirritaður samningur milli Hafnarfjarðar og Fimleikafélagsins Bjarkar varðandi rekstur á íþróttamiðstöðinni Björk. Frá og með næstu áramótum taka Bjarkirnar […]
Sandur hjá Þjónustumiðstöð
Mikil hálka er á götum, göngustígum og bílaplönum út um allan bæ þessa dagana. Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar er á vakt nánast allan sólarhringinn við söltun og söndun en það dugar ekki í öllum tilfellum til. Líkt og undanfarin ár stendur íbúum í Hafnarfirði til boða að sækja sér sand til Þjónustumiðstöðvar bæjarins sem staðsett er […]
Lagt til að hefja undirbúning nýs skóla
Fjölmennir árgangar kalla á aðlögun og uppbyggingu á svæðinu Starfshópur um skólamál á Völlum, sem fræðsluráð Hafnafjarðarbæjar skipaði í lok ágústmánaðar, hefur skilað tillögum sínum til ráðsins. Hlutverk starfshópsins var að meta húsnæðisþörf leik- og grunnskóla og móta tillögur um framtíðarfyrirkomulag skólastarfs í ört vaxandi hverfi á Völlum. Starfshópurinn hefur nú lagt til […]
Útboð á aðkeyptri þjónustu – ábati 111 milljónir
Mikil áhersla hefur verið lögð á að lækka rekstarkostnað Hafnarfjarðarbæjar án þess að skerða þjónustu við bæjarbúa. Einn af liðunum í umbótaferli bæjarins snýr að auknum útboðum á aðkeypti þjónustu. Nýlega voru boðnir þjónustuþættir sem snúa m.a að tryggingum, endurskoðun, skólaakstri, alhliða prentlausnum, framleiðslu á mat og ræstingu. Ábati við útboð þessarra þátta á […]
Nýsköpun í atvinnumálum fatlaðs fólks
Nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefnið Geitungarnir fór af stað í september á þessu ári og er óhætt að segja að mikil gleði sé meðal aðstandenda og ekki síður þátttakenda sem hafa síðustu mánuði verið í starfsnámi, búið til söluvörur fyrir Jólaþorpið, haldið opið kaffihús og haldið úti bloggi. Sex ungmenni hafa tekið virkan þátt í þjónustuúrræðinu […]
Jóladagskrá Byggðasafnsins
Í desember býður Byggðasafn Hafnarfjarðar leikskólabörnum úr Hafnarfirði og nágrannasveitarfélögunum að koma í heimsókn í Sívertsens-húsið, hús Bjarna riddara Sívertsen og fjölskyldu hans við Vesturgötuna. Þar eru þeim sagðar sögur af lífinu í húsinu frá liðnum tíma. Meðal annars er sagt frá jólaeplunum, frá heimsókn danska krónprinsins sem þáði súkkulaði með rjóma og margt fleira áhugavert. […]