Skipulagsbreyting – Öldutún

Fréttir

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Öldutúnsskóla og Öldugötu leikskólalóðar.  Tillagan verður til sýnis frá 7. mars til 11. apríl 2016. 

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Öldutúnsskóla og Öldugötu leikskólalóðar

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 12. jan. 2016 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Öldutúnsskóla og Öldugötu leikskólalóðar. Breytingin felst í því að leikskólalóðinni verði breytt með það fyrir augum að þar megi einnig koma fyrir íbúðakjarna fyrir fatlaða. Tillagan er auglýst með vísan í 42. gr. laganr. 123/2010. Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 8 – 10 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 07. 03 . 2016 til 11. 04. 2016. 

Hér má sjá deiliskipulagstillöguna  

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 11. apríl. 2016. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni. Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagsþjónustu. 

Umhverfis- og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðar Skipulagsfulltrúi

Ábendingagátt