Bæjarhraun – skipulagsbreyting

Fréttir

Breyting á deiliskipulagi við Bæjarhraun, göngu- og reiðhjólastígur.  Breytingin felur í sér að bætt verði við 16 bílastæðum við Bæjarhraun.

Breyting á
deiliskipulagi Bæjarhraun, göngu- og reiðhjólastígur. 

Skipulags- og byggingarráð  Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann
25. febrúar 2016 að auglýsa tillögu að breytingunni í samræmi við 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér að bætt er
við 16 bílastæðum við Bæjarhraun.

Tillagan verður til sýnis hjá umhverfis- og
skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 29. febrúar – 11.apríl 2016.   Hér má sjá tillögu að breytingu á deiliskipulagi.  Nánari upplýsingar eru veittar hjá umhverfis-
og skipulagsþjónustu.

Þeim sem telja sig hagsmuna
eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal
þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar
eða í tölvupósti berglindg@hafnarfjordur.is eigi síðar en 11. apríl 2016.

Þeir sem ekki gera
athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.

Umhverfis- og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðar

Ábendingagátt