Skipulagsbreyting – Íshella

Fréttir

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Íshellu 1, 3 og 3a í Hafnarfirði. Tillagan verður til sýnis frá 7. mars til 11. apríl 2016.  

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Íshellu 1, 3 og 3a í Hafnarfirði

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 1. desember 2015 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðanna við Íshellu 1, 3 og 3a. með vísan í 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  Breytingin felur í sér að lóðirnar 1, 3 og 3a verða sameinaðar í eina lóð. Hluti af götu verður lagður undir lóðina. Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,5. Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 8-10 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 07. 03. 2016 til 11. 04. 2016. 

Hér má sjá deiliskipulagstillöguna

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 11. apríl. 2016. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni. Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagsþjónustu.

Umhverfis- og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðar
Skipulagsfulltrúi

Ábendingagátt