Mánudaginn 25. maí lögðu átta ungmenni í 8. bekk úr öllum skólum af stað á vinabæjarmót norrænu vinabæjarkeðjunnar í Frederiksberg í Danmörku. Þar tók unga fólkið þátt í fjölbreyttri vinnu með jafnöldrum sínum frá vinabæjunum þar sem hæfileikar þeirra voru fléttaðir saman við tónlistar og leiklistaratriði sem þau fluttu fyrir sendinefndir frá vinabæjunum sem komu […]
Flokkur: Fréttir
Óskar Guðjónsson ráðinn sem forstöðumaður Bókasafnsins
Óskar Guðjónsson hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður Bókasafns Hafnarfjarðar og mun hefja störf í byrjun ágústmánaðar. Óskar er með meistaragráðu í bókasafnsfræðum frá State University of New Jersey og BA gráðu í bókasafns- og upplýsingafræði og bókmenntum frá Háskóla Íslands. Hann starfar nú sem safnastjóri og fer með yfirstjórn þriggja útibúa Borgarbókasafns Reykjavíkur. Anna Sigríður […]
Menningargöngur í allt sumar
Í sumar verður boðið upp á fyrstu menningargöngu sumarsins með leiðsögn um svæðið umhverfis miðbæ Hafnarfjarðar öll fimmtudagskvöld kl. 20. Þetta er annað sumarið sem göngurnar eru haldnar og í fyrra fór þátttakan fram úr björtustu vonum. Hver ganga tekur um klukkustund, þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Fimmtudagskvöldið 4. júní kl. 20 mun Magnea […]
107 ára kaupstaðarafmæli
Hafnarfjarðarbær fagnar 107 ára kaupstaðarafmæli í dag. “ Hafnarfjörður fékk kaupstaðarréttindi 1. júní 1908. Sama dag var fyrsti kjörfundurinn haldinn í Góðtemplarahúsinu við Suðurgötu. Fundurinn hófst á hádegi og lauk þremur klukkutímum síðar. 25 manns komu á kjörstað, en talið er að um 400 manns hafi verið á kjörskrá. Í Kvásum, nýstofnuðu bæjarblaði, segir að […]
Innritunaraldur í leikskóla lækkaður, útgjöld barnafjölskyldna minnka
Mánudaginn 1. júní, á 107 ára kaupstaðarafmæli bæjarins, verða lagðar fram í fræðsluráði tillögur sem miða m.a. að því að lækka innritunaraldur barna í leikskóla og hækka mótframlag til foreldra barna hjá dagforeldrum. Með þessum tillögum er reglunum breytt þannig að yngri börn komast inn í leikskóla og stefnt er að því að börn verði […]
Fráveitan – breytingar á lögnum í Ósnum
Á síðasta áratug tóku Hafnfirðingar myndarlega á fráveitumálum bæjarins. Ráðist var í átaksverkefni sem að fólst í því að byggðar voru fjórar sérhannaðar dælu- og hreinsistöðvar meðfram strandlengjunni frá Herjólfsgötu allt suður í Hraunavík. Inn á þessar stöðvar voru tengdar flestar eldri skolplagnir í eldri hlutum bæjarins en ástand þeirra var og er býsna misjafnt. […]
Hraunvallaskóli 10 ára
Nú í júní er stór stund í sögu skólans. Þá útskrifum við í fyrsta sinn nemendur sem hafa lokið tíu ára skólagöngu sinni við Hraunvallaskóla. Í tilefni þessara skemmtilegu tímamóta bjóðum við þér/ykkur að fagna með okkur þriðjudaginn 2. júni. Við bjóðum upp á fjölbreytta dagskrá á sal þar sem nemendur gleðja og skemmta okkur […]
Bæjarstjórnarfundur 27. maí
Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 13.maí l 14.00. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.
Sami staður, nýr tími
Fimmtudaginn 28. maí kl. 20 verður haldin málstofa um endurnýjun hafnarsvæða. Á meðal þátttakenda eru Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna, Anna María Bogadóttir arkitekt og Róbert Guðfinnsson athafnamaður frá Siglufirði. Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur leiðir umræðuna. Málstofan er haldin í tengslum við sýninguna Þinn staður okkar umhverfi við Flensborgarhöfn en það […]
Leynast garðyrkjuhæfileikar í þér?
Skólagarðar í Hafnarfirði opna mánudaginn 1. Júní. Garðarnir eru staðsettir á fimm stöðum víðsvegar um bæinn, í Setbergi, Holtinu, í Öldutúni, við Víðistaði og á Völlunum. Forgangur fyrir börn frá 7-12 ára börn er nú liðinn og geta því allir bæjarbúar frá aldrinum 7 ára og eldri sótt um garð í skólagörðunum, er hugmyndin sú […]