Hertar sóttvarnaráðstafanir tóku gildi laugardaginn 31. október. Meginbreytingin felst í 10 manna fjöldatakmörkum í stað 20 áður. Gert er ráð fyrir að reglur um hertar aðgerðir gildi til og með 17. nóvember. Þær verða endurmetnar eftir aðstæðum með hliðsjón af því hvort hægt verði að aflétta þeim fyrr, eða hvort framlenging sé nauðsynleg. Sundlaugar og […]
Flokkur: Fréttir
Covid19: Takmörkun á skólastarfi frá 3. nóvember
Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi vegna hertra sóttvarnaaðgerða tekur gildi 3. nóvember. Sett er það markmið að sem minnst röskun verði á skólastarfi og að starf á leikskólastigi og á fyrsta stigi grunnskóla verði óskert. Að ráði sóttvarnalæknis verður reglu um grímuskyldu breytt þannig að hún eigi ekki við um börn fædd 2011 […]
Skólahald í ljósi hertra sóttvarnarreglna
Leik- og grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu taka til starfa á ný á morgun, 3. nóvember en starfsdagur var í dag vegna skipulagningar skólastarfs í ljósi hertra sóttvarnarreglna. Leik- og grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu hafa undanfarnar vikur gripið til margvíslegra varúðarráðstafana hvað varðar sóttvarnarhólf, smitvarnir og blöndun hópa og eru því vel undirbúnir til þess að haga starfi […]
Takmörkun á velferðarþjónustu – en óskert eftir föngum
Hertar sóttvarnaráðstafanir stjórnvalda tóku gildi í gær, laugardaginn 31. október. Meginbreytingin felst í 10 manna fjöldatakmörkum í stað 20 áður. Öllu skipulögðu félagsstarfi eldri borgara lokað tímabundið Í ljósi hertra aðgerða stjórnvalda hefur verið tekin ákvörðun um að allri skipulagðri hópastarfsemi í félagsstarfi eldri borgara verði lokað tímabundið. Hraunsel verður þó opið, starfsmenn verða til […]
Skipulagsdagur í leik- og grunnskólum 2. nóvember
Sveitarfélögin og almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að hafa skipulagsdag í leik- og grunnskólum, tónlistarskólum og frístundastarfi mánudaginn 2. nóvember vegna hertra sóttvarnarreglna stjórnvalda til varnar COVID-19. Mánudagurinn 2. nóvember verður notaður til að skipuleggja starfið með kennurum og öðru starfsfólki. Leik- og grunnskólabörn eiga því ekki að mæta í skólann mánudaginn 2. nóvember en […]
Hertar sóttvarnaráðstafanir frá 31. október
Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi laugardaginn 31. október. Sömu reglur munu gilda um allt land. Meginbreytingin felst í 10 manna fjöldatakmörkum í stað 20 áður. Allt íþróttastarf verður óheimilt og sviðslistir sömuleiðis. Gert er ráð fyrir að reglur um hertar aðgerðir gildi til og með 17. nóvember. Þær […]
Sjálfstraust nemenda efldist í foreldrafjarviðtölum
Á tímum Covid19 hefur reynt duglega á fjölmennan hóp sem skipar framvarðasveit í menntamálum hér í Hafnarfirði. Þriðja bylgja smita og sóttvarnaaðgerða stendur nú sem hæst. Grunnskólar hafa ekki þurft að loka en starfsfólk skiptist í hólf á kaffistofum eftir námsstigum og foreldrar mega ekki fara inn í skólana. Bæjarblaðið Hafnfirðingur ræddi við fulltrúa allra […]
Hafnarfjarðarbær selur 15,42% hlut í HS Veitum hf.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag að ganga að tilboði HSV eignarhaldsfélags slhf. í 15,42% eignarhlut bæjarins í HS Veitum fyrir 3,5 milljarða króna. Undirbúningur að sölu hlutabréfanna í HS Veitum hófst með samþykkt bæjarráðs í apríl. Hluturinn var settur í opið útboðsferli og sýndu fjölmargir fjárfestar áhuga á hlutabréfunum. Eftir sex mánaða […]
Höldum hrekkjavöku heima öryggisins vegna
Laugardaginn 31. október er hrekkjavaka sem sífellt hefur notið meiri vinsælda hér á landi og víða hefur skapast sú hefð að börn gangi í hús með „grikk eða gott“. Að teknu tilliti til þess að enn er í gildi neyðarstig almannavarna vegna COVID-19 eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að halda upp á hrekkjavökuna með […]
Skínum skært í vetur!
Endurskin eykur öryggi í umferðinni Nú þegar dag er tekið að stytta er nauðsynlegt að minna á mikilvægi þess að vera með endurskinsmerki eða endurskin á fatnaði og gott ljós á öllum farartækjum. Endurskinsmerki á fötum og ljós á hjólum auka öryggi og sýnileika og skipta miklu máli í þeim aðstæðum sem skapast yfir vetrarmánuðina, […]