Við bjóðum starfsfólk og gesti Hafrannsóknarstofnunar velkomna til Hafnarfjarðar! Hafrannsóknarstofnun (Hafró) er flutt til Hafnarfjarðar. Samningur um nýtt húsnæði var undirritaður í febrúar 2018 og fyrsta skóflustungan tekin í mars sama ár. Nú fyrir helgi var húsnæðið að Fornubúðum 5 opnað formlega með táknrænum hætti þar sem forseti Íslands, sjávarútvegsráðherra, ráðuneytisstjóri, forstjóri, starfsfólk stofnunarinnar og […]
Flokkur: Fréttir
34 nýjar hesthúsalóðir lausar til úthlutunar
Hesthúsalóðir á athafnasvæði Sörla lausar til úthlutunarReiðvegasvæði Sörla er með því besta og fallegasta sem gerist á höfuðborgarsvæðinu Hafnarfjarðarbær auglýsir hesthúsalóðir á athafnasvæði Hestamannafélagsins Sörla við Fluguskeið og Kaplaskeið lausar til úthlutunar. Lóðirnar eru mismunandi að stærð, sú minnsta 452,2 m2 og sú stærsta 1.909,3 m2 með rými fyrir 8-48 hesta. Breytt deiliskipulag sem samþykkt […]
Komdu ábendingum þínum á framfæri!
Ný ábendingagátt fyrir Hafnarfjarðarbæ var sett í loftið í mars 2020 og eru þegar farnar að berast hátt í 150 ábendingar á mánuði hverjum frá áhugasömum íbúum sem umhugað er um umhverfi sitt og bæinn í heild. Allar ábendingar fara í ákveðið ferli á viðeigandi sviði allt eftir efni og eðli þeirra. Sumar ábendingar er […]
Skref í átt að hágæðasamgöngum
Stjórn Strætó bs. og Hafnarfjarðarbær samþykktu í fyrra breytingar á leiðanetinu innan sveitarfélagsins sem munu taka gildi 14. júní. Um er að ræða fyrsta áfanga í hinu stóra Borgarlínuverkefni og spilar leið 1 þar stóran þátt, sem hefst og endar á Völlunum. Bæjarblaðið Hafnfirðingur ræddi við Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóra Strætó bs. „Þetta er fyrsta Borgarlínubreytingin […]
Rabbrýmið – hlaðvarpsstúdíó í bókasafni
Rabbrýmið er opið hlaðvarpsstúdíó Bókasafns Hafnarfjarðar þar sem bækur og blaður hittast yfir hangandi hljóðnemum og allir eru til í spjall. Rýmið er opið öllum þeim sem eru með gilt bókasafnskort og er hægt að panta upptökutíma á vefsíðu bókasafnsins. Það eru allir hjartanlega velkomnir í Rabbrýmið! Í Rabbrýminu er allur búnaður sem þarf til upptöku og […]
Menningar- og heilsugöngur 2020
Í sumar er boðið upp á bæjargöngur með leiðsögn alla fimmtudaga kl. 20. Flestar göngur taka um klukkustund, þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Göngurnar eru samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. 4. júní- Sjónarhorn á Hafnarfjörð Ágústa Kristófersdóttir forstöðumaður Hafnarborgar leiðir göngu þar sem sjónarhorn listamanna á gamla bæinn verða leituð uppi. […]
Til hamingju með afmælið!
Hafnarfjörður fagnar í dag 112 ára afmæli en sveitarfélagið fékk kaupstaðaréttindi þann 1. júní 1908. Ári seinna, þann 1. júní 1909, bjuggu 1469 manns í bænum og voru 109 börn skráð í barnaskóla bæjarins. Í dag búa í kringum 30.000 íbúar í Hafnarfirði og eru nemendur í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins orðnir tæplega 6000 í […]
Tvær nýjar sýningar opnaðar á afmælisdegi bæjarins
Sumarið á Byggðasafni Hafnarfjarðar hefst með Grásleppukarla- og hernámssýningu. Sumaropnun hefst á Byggðasafni Hafnarfjarðar á 112 ára afmælisdegi bæjarins 1.júní með opnun á tveimur nýjum sýningum. Þemasýning um grásleppukarla opnar í Pakkhúsi og ný hernámssýning hefur verið sett upp á Strandstíg. Aðgangur að öllum söfnum Byggðasafns er ókeypis og eru öll fimm hús safnsins opin […]
Opnunartímar sundstaða um hvítasunnuhelgina
Sundlaugarnar í Hafnarfirði verða opnar sem hér segir um hvítasunnuhelgina. Lau 30. maí Sun 31. maí Mán 1. júní Ásvallalaug 08:00-18:00 08:00-17:00 08:00-17:00 Suðurbæjarlaug 08:00-18:00 Lokað 08:00-17:00 Sundhöll 08:00-18:00 Lokað 08:00-17:00 Í ljósi fjöldatakmarkana og umfangsmikilla viðhaldsframkvæmda í Suðurbæjarlaug mega 30 einstaklingar vera vera í Suðurbæjarlaug í einu, 32 í Sundhöll Hafnarfjarðar og 200 […]
Allir skólar Hafnarfjarðar fá viðurkenningu fræðsluráðs
Viðurkenning fræðsluráðs Hafnarfjarðar er veitt á hverju ári fyrir verkefni í skólastarfi sem ýta undir skólaþróun, fagsamvinnu og samstarf. Í ár var ákveðið að veita öllum skólum í Hafnarfirði, leikskólum, grunnskólum og tónlistarskóla, viðurkenningu fyrir það stóra verkefni að halda uppi öflugu og skapandi skólastarfi á óvissutímum, fyrir að standa í framlínunni og sinna starfi […]