Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem vera átti kl. 17 í dag í Hafnarborg er frestað sökum óveðurs sem nú gengur yfir bæinn. Ný dagsetning fyrir hátíðina tilkynnt síðar. Myndin er af sigurvegurum í fyrra ásamt skólastjórnendum sínum.
Flokkur: Fréttir
Ófærð í Hafnarfirði
Ófærð er um allan bæ en verst er þó ástandið á Völlum, Krýsuvíkurvegi, Áslandi, Setbergi og í Mosahlíð. Mjög slæmt skyggni er í bænum en samkvæmt veðurspá á að fara að rigna innan klukkutíma og þá um leið ætti skyggni að skána þannig að snjóruðningstæki geti hafið ruðning.
Stjórn Minningarsjóðs Helgu og Bjarna úthlutar styrkjum úr styrktarsjóði
Þrjú verkefni hlutu styrk úr Minningarsjóð Helgu og Bjarna við hátíðlega athöfn í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju Hásölum á afmælisdegi Bjarna Snæbjörnssonar læknis 8. mars. Húsið – Ungmennahús fékk tvo styrki, Ísjakarnir sem er hópastarf með það að markmiði að tengja ungmenni af erlendum uppruna inn í samfélagið fékk 150 þúsund og Stuðboltarnir hópur ungmenna með fatlanir […]
Stóra upplestrarkeppnin
Á hátíðinni munu nemendur í 7. bekk, sem valdir hafa verið á hátíðum í grunnskólunum lesa brot úr skáldverki og ljóð. Að lokum mun dómnefnd velja þrjá bestu upplesarana og veita verðlaun. Auk þess koma fram ungir hljóðfæraleikarar og veitt verða verðlaun fyrir boðskortið og í smásagnasamkeppni sem efnt er til árlega í 8.-10. bekkjum […]
Velheppnaður starfsdagur dagforeldra
Föstudaginn 6. mars voru dagforeldrar í Hafnarfirði með starfsdag. Dagurinn var fullskipaður og byrjaði kl. 08:30 á aðalfundi. Aðalheiður Runólfsdóttir var kosinn formaður og til vara Sigríður Júlíusdóttir. Aðrir í stjórn voru kosnar Eyrún Gísladóttir gjaldkeri og Þóra Jónína Hjálmarsdóttir og Steinþóra Þorsteinsdóttir meðstjórnendur. Að aðalfundi loknum sóttu dagforeldrar fræðsluerindi í boði Hafnarfjarðarbæjar um stefnu […]
Spjaldtölvur í Áslandsskóla
Áslandsskóli hefur þegar hafið undirbúning að spjaldtölvuvæðingu skólans. Skipulagsvinna er í fullum gangi og í gær fengu kennarar skólans sín Ipad tæki afhent. Framundan er fræðsla og kennsla á þessu mögnuðu tæki. Stefnt er að því að nemendur í 5.-10. bekk fái allir tæki í haust og að til staðar verði einnig bekkjartæki fyrir yngri […]
Ábendingar vegna endurskoðunar á skólastefnu
Stýrihópur um endurskoðun skólastefnu fyrir Hafnarfjörð óskar eftir ábendingum og hugmyndum í endurskoðunarvinnuna. Hann hefur sent út bréf til foreldraráða leikskóla, skólaráða grunnskóla og foreldrafélaga og fleiri tengda aðila, þar sem m.a. segir: „Skólastarf er ein mikilvægasta starfsemi bæjarfélagsins. Nú stendur yfir endurskoðun skólastefnu Hafnarfjarðar og erum við undirrituð skipuð í stýrihóp um verkefnið af […]
Barnakóramót Hafnarfjarðar 14. mars
Árlegt kóramót hafnfirskra barna, Barnakóramót Hafnarfjarðar, verður laugardaginn 14. mars í Víðistaðakirkju. Mótinu er tvískipt eftir aldri barnanna en alls munu nálægt 280 börn koma þar fram þar sem dagskráin er eftirfarandi: Kl. 12:30 Tónleikar ― yngri kórar Barnakór Hafnarfjarðarkirkju Miðkór Lækjarskóla Litlikór Öldutúnsskóla Kór Áslandsskóla Kór Víðistaðakirkju Kl. […]
Snjóbrettamót í miðbænum
Snjóbrettamóti SLARK verður haldið í annað sinn á Thorsplani í miðbæ Hafnarfjarðar þann 7.mars kl. 13:30. Þar mun allt helsta snjóbrettafólk landsins sýna listir sínar á handriðum, rörum og pöllum. Það verður að sjálfsögðu góð tónlist og rugluð stemning á mótinu þar sem að hljómsveitir og plötusnúðar munu halda uppi stemningu á meðan á mótinu […]
Hafnarfjörður heilsueflandi samfélag
Hafnarfjörður varð i dag formlegur aðili að verkefninu Heilsueflandi samfélag þegar bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson og Birgir Jakobsson landlæknir skrifuðu undir samstarfssamning. Í Heilsueflandi samfélagi er lögð áhersla á að vinna með fjóra meginþætti: Hreyfingu, næringu, líðan og lífsgæði „ Þetta er spennandi verkefni sem miðar að því að efla lýðheilsu og lífsgæði íbúa Hafnarfjarðarbæjar […]