Bæjarráð

17. desember 2007 kl. 12:00

í fundarherbergi 3ju hæð, Strandgötu 6

Fundur 3190

Mætt til fundar

Ritari

  • Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs
  1. Almenn erindi

    • 0709109 – Eignarhlutur Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja

      Tekið fyrir nýju. Lagt fram minnisblað Askar Capital.%0DBæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins og lagði fram eftirfarandi tillögu fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænnna:

      Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn:%0DBæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að nýta ákvæði í viljayfirlýsingu milli Hafnarfjarðarbæjar og Orkuveitu Reykjavíkur frá 2. júlí 2007 varðandi sölu á eignarhlut bæjarfélagsins í Hitaveitu Suðurnesja hf.. Sú ákvörðun er jafnframt tekin á grundvelli þess hluthafasamkomulags sem í gildi er milli eignaraðila í Hitaveitu Suðurnesja hf. og undirritað var þann 11. júlí 2007, þar sem m.a. kemur fram að komi til sölu á hlut Hafnarfjarðarbæjar til Orkuveitu Reykjavíkur munu Reykjanesbær og Geysir Green Energy ehf. ekki nýta forkaupsréttarheimild sína að þeim hlut.%0D%0DEignarhlutur Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja er 15,4178%. Bæjarstjórn samþykkir að selja til Orkuveitu Reykjavíkur allt að 95% hlutafjár Hafnarfjardarbæjar i HS hf. Þá samþykkir bæjarstjórn Hafnarfjarðar jafnframt að teknar verði upp formlegar viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur um möguleg kaup bæjarfélagsins á hlut í OR. %0D%0DBæjarstjórn samþykkir að fela starfshópi sem skipaður er oddvitum þeirra stjórnmalaflokka sem sæti eiga i bæjarstjórn að leita eftir samkomulagi vid Orkuveitu Reykjavikur um hugsanleg hlutafjárskipti. Slíkt samkomulag verði i síðasta lagi gert fyrir lok febrúar 2008. Forsendur þeirra kaupa ráðist af því verðmati sem liggi fyrir á Orkuveitunni og sameiginlegri afstöðu varðandi framtíðarskipan dreifikerfis rafmagns innan lögsögu Hafnarfjarðar.%0D%0DFyrir liggur að Hafnarfjarðarbær verður þriðjungshluthafi í Suðurlindum ohf. ásamt Grindavík og Sveitarfélaginu Vogum, en formlegur stofnfundur félagsins verður haldinn nk. fimmtudag. Meginverkefni þessa nýja félags er að standa vörð um sameiginlega hagsmuni sveitarfélaganna og íbúa þeirra varðandi náttúrauðlindir og mögulega nýtingu orkuauðlinda innan lögsagnarumdæma sveitarfélaganna.%0D%0DBæjarstjórn itrekar að Hafnarfjarðarbær á og rekur bæði Vatnsveitu Hafnarfjarðar og Fráveitu Hafnarfjarðar og mun halda því eignarhaldi og þeim rekstri áfram með óbreyttu sniði .%0D%0DBæjarráði er jafnframt falið að ganga frá tillögum um ráðstöfun söluvirðis umræddra eignarhluta, þegar fyrir liggur, hvernig samkomulagi um hlutafjárskipti reiðir af og hversu stóran hluta Hafnarfjarðarbær selur í HS.%0D%0DSöluverð skal vera á genginu 7.0 samanber viljayfirlýsingu frá 2. júlí sl. og uppgjör fari fram við undirritun sölusamnings innan 2ja vikna frá samkomulagi.%0D%0DBæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram eftirfarandi tillögu:%0DBæjarráð samþykkir að leggja eftirfarandi til við bæjarstjórn:%0DBæjarstjórn ákveður að selja Orkuveitu Reykjavíkur allan hlut Hafnarfjarðar í Hitaveitu Suðurnesja að nafnvirði 1.149.368.544 á genginu 7,0 sbr. 5. gr. samkomulags OR og Hafnarfjarðarbæjar dags. 2. júlí 2007. %0D%0DAndvirðinu verði ráðstafað með eftirfarandi hætti:%0D1) DePfa lán sem stóð í 1.931.503.164 kr 31.8. 2007%0D2) Lánasjóður sveitarfélaga lántökudagur 1.12.2006 sem stóð í 412.691.104 kr 31.8.2007%0D3) Lánasjóður sveitarfélaga (lokadagur 1.9.2010) sem stóð í 562.628.740 kr 31.8..2007%0D4) Lánasjóður sveitarfélaga (uppgreiðsla heimil 1.10.2010) sem stóð í 931.022.720 kr 31.8. 2007%0D5) Lánas.sveitarfélaga (uppgreiðlsla. heimil fyrst 15.10.2010) sem stóð í %0D779.400 000 kr (í EURO) 31.8. 2007-%0D6) Wurtt. Hypo. (lokadagur 3.8.2010 og. uppgreiðsla ekki heimil fyrr) sem stóð 1.472.199.936 kr.(í EUR0) 31.8. 2007.%0D%0DSöluandvirðið verður einungis notað til greiðslu skulda og skuldbindinga Hafnarfjarðarbæjar og áður en kemur til einstakra greiðslna ofangreindra lána verði það ávaxtað með tryggilegum hætti.%0DLækkun á skuldum bæjarins og vaxtabyrði verður notað til að lækka útsvar, fasteignagjöld og aðrar álögur á bæjarbúa.%0D%0D%0D %0D%0D %0D

    • 0708188 – Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Hafnarfjarðar 2008

      Bæjarstjóri lagði fram og gerði grein fyrir breytingartillögum Samfylkingarinnar við frumvarp að fjárhagsáætlun 2008.

      Bæjarráð samþykkir að vísa breytingartillögunum til bæjarstjórnar.

    • 0712112 – RGI Fjárfestingafélag ehf, athugasemdir við úthlutun í nóvember 2007

      Lagt fram erindi RGI Fjárfestingafélags ehf dags. 6.12.07 þar sem óskað er eftir rökstuðningi við úthlutun atvinnulóða í nóvember sl.%0DBæjarstjóri kynnti drög að svari.

      Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu. %0D%0D

    • 0712033 – Fjarðarpósturinn, auglýsingartilboð

      Tekið fyrir að nýju.

      Bæjarráð synjar erindinu þar sem það samræmist ekki innkaupareglum Hafnarfjarðarbæjar að ganga til samninga við einn aðila með þessum hætti.

    • 0711144 – Kapelluhraun, geymslusvæði

      Lagt fram verðmat Fasteignastofunnar í atvinnu- og iðnaðarlóð sem er í einkaeigu innan deiliskipulagssvæðins Kapelluhraun 1. áfangi.%0DBæjarlögmaður mætti til fundarins og gerði grein fyrir málinu.

      Bæjarráð felur bæjarlögmanni að gera tilboð í lóðina á grundvelli fyrirliggjandi verðmats.

    • 0711142 – Lækjargata 2, hluti, sölutilboð og gagntilboð

      Lagt fram sölutilboð og verðmat í tiltekna eignarhluta í húseigninni Lækjargata 2.%0DBæjarlögmaður mætti til fundarins og gerði grein fyrir málinu.

      Bæjarráð felur bæjarlögmanni að gera gagntilboð á grundvelli fyrirliggjandi verðmats.

    Kynningar

    • 0712041 – Neytendasamtökin, styrkbeiðni 2008

      Lagt fram erindi Neytendasamtakanna dags. 4. desember 2007 þar sem óskað er eftir styrk vegna starfseminnar. Miðað er við framlag sem nemur 18 krónum á hvern íbúa 1. desember 2006.

      Lagt fram.

    • 0712110 – Aðventkirkjan í Hafnarfirði, styrkur

      Lagt fram erindi Aðventkirkjunnar í Hafnarfirði dags. 2.12.2007 þar sem óskað er eftir styrk vegna breytinga á húsnæði safnaðarins til að bæta aðgengi fatlaðra.

      Bæjkarráð samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 400.000 sem takist af fjárveitingu bæjarráðs 2007 til styrkveitinga .%0D%0D

Ábendingagátt