Fjármálastjóri bæjarins mætti til fundarins og gerði grein fyrir stöðu málsins.
Bæjarráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
Ritari
- Anna Jörgensdóttir ritari bæjarráðs

Almenn erindi

0810052 – Nýsir hf, einkaframkvæmdasamningar

0902105 – Hamarsbraut 17, makaskipti á lóðum
Lagt fram minnisblað frá skrifstofustjóra skipulags- og byggingarsviðs vegna verðmats á lóðinni nr. 16 við Hamarsbraut.

Skipulags- og byggingarsviði er falið að vinna áfram að málinu í samræmi við minnisblað skrifstofustjóra skipulags- og byggingarsviðs.

0903191 – Strætó bs, fjárhagsleg staða
Lögð fram tillaga um endurfjármögnun Strætó bs., samþykkt á stjórnarfundi 15. júní sl., ásamt nánari útfærslu. Jafnframt lagt fram bréf frá stjórn SSH, dags. 16. júní sl., þar sem lagt er til að aðildarsveitarfélög samþykki fyrirliggjandi tillögu að endurfjármögnun Strætó bs.

Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi tillögu að endurfjármögnun Strætó bs. sbr. bréf stjórnar SSH dags. 16. júní sl.

0804073 – Rósavellir 38, úthlutun/afturköllun
Lögð fram tillaga frá skipulags- og byggingarsviði um afturköllun lóðaúthlutunar vegna Rósavalla 38 þar sem ekki hefur verið staðið við 1. gr. úthlutunarskilmála og andmælarétti ekki verið sinnt.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn:

“Bæjarstjórn samþykkir að afturkalla lóðarúthlutun, í samræmi við úthlutunarskilmála, til Valgerðar Guðbjargar Þórðardóttur, kt. 130352-2439, og Bryngeirs Ásbjörnssonar, kt. 080852-7469, vegna lóðarinnar Rósavellir 38.“

0801310 – Strandgata 9, lóðamál
Lögð fram drög að nýjum lóðarleigusamningi vegna Strandgötu 9.

Bæjarráð samþykkir að vísa drögunum til samþykktar í bæjarstjórn.

0906189 – Sýslumannsembættið í Hafnarfirði, ársskýrsla 2008
Lagt fram bréf frá sýslumannsembættinu í Hafnarfirði, dags. 9. júní sl., ásamt meðfylgjandi ársskýrslu fyrir árið 2008.

0906061 – Fjárhagsáætlun 2009, endurskoðun.
Til fundarins mættu frá framkvæmdasviði Sigurður Páll Harðarson, sviðsstjóri, Sigurður Haraldsson, forstöðumaður Fasteignafélags, Helga Stefánsdóttir, deildarstjóri gatnadeildar, frá fræðslusviði Magnús Baldursson, sviðsstjóri fræðslusviðs og frá skipulags- og byggingarsviði, Bjarki Jóhannesson, sviðsstjóri. Jafnframt mætti til fundarins Gerður Guðjónsdóttir, fjármálastjóri.

Fundargerðir

0901033 – Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, fundargerðir 2009
Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 15. júní sl., 140. fundur.

0901031 – Strætó bs, fundargerðir 2009
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 15. júní sl., 120 fundur.

0901032 – SSH, fundargerðir 2009
Lagðar fram fundargerðir stjórnar SSH, dags. 8. júní og 15. júní sl., fundir nr. 336 og 337.