1.liður úr fundargerð BÆJH frá 29.okt.sl.$line$ Fjármálastjóri mætti á fundinn og kynnti tillögu að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og fyrirtækja hans 2013 sem og áætlun 2014- 2016.$line$Skipulags- og byggingarráð samþykkti sína áætlun 23.10. sl. og umhverfis- og framkvæmdaráð sína 24.10. sl.$line$Fræðsluráð vísar sinni áætlun til bæjarráðs 22.10.$line$Fjölskylduráð vísar sinni áætlun til bæjarráðs 26.10.$line$ $line$ Bæjarráð vísar fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og fyrirtækja hans 2013-2016 til fyrri umræðu í bæjarstjórn. $line$$line$Gert er ráð fyrir kynningu á áætluninni í bæjarstjórn miðvikudaginn 31. október nk. kl. 14:00$line$
Bæjarstjórn
í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg
Mætt til fundar
- Margrét Gaua Magnúsdóttir forseti
- Gunnar Axel Axelsson aðalmaður
- Eyjólfur Sæmundsson aðalmaður
- Sigríður Björk Jónsdóttir aðalmaður
- Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
- Kristinn Andersen aðalmaður
- Geir Jónsson aðalmaður
- Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
- Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri
- Guðfinna Guðmundsdóttir varamaður
- Helga R Stefánsdóttir varamaður
Forseti bæjarstjórnar, Margrét Gauja Magnúsdóttir, setti fundinn og stjórnaði honum. Allir aðalbæjarfulltrúar mættir nema Valdimar Svavarsson og Lúðvík Geirsson. Í þeirra stað mættu Helga Ragnheiður Stefánsdóttir og Guðfinna Guðmundsdóttir. Gengið til dagskrár.
Ritari
- Anna Jörgensdóttir hdl. ritari bæjarstjórnar
Forseti bæjarstjórnar, Margrét Gauja Magnúsdóttir, setti fundinn og stjórnaði honum. Allir aðalbæjarfulltrúar mættir nema Valdimar Svavarsson og Lúðvík Geirsson. Í þeirra stað mættu Helga Ragnheiður Stefánsdóttir og Guðfinna Guðmundsdóttir. Gengið til dagskrár.
-
Almenn erindi
-
1210361 – Fjárhagsáætlun bæjarstjóðs og fyrirtækja hans 2013-2016. Fyrri umræða.
Fjármálastjóri Hafnarfjarðarbæjar, Gerður Guðjónsdóttir, mætti til fundarins og kynnti fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og fyrirtækja hans 2013-2016.$line$$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls og lagði fram svohljóðandi tillögur:$line$$line$Álagning sveitarsjóðsgjalda$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að útsvarshlutfall árið 2013 verð óbreytt, þ.e. 14,48%“ $line$ $line$Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og fyrirtækja hans 2013-2016, fyrri umræða $line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að vísa framlagðri fjárhagsáætlun 2013-2016 til síðari umræðu í bæjarstjórn þann 5. desember 2012″$line$$line$Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls. Þá Gunnar Axel Axelsson.$line$$line$Gert stutt fundarhlé. $line$$line$Forseti bar upp tillögu um að tekið yrði á dagskrá með afbrigðum málið Álagning sveitarsjóðsgjalda 2013. Bæjarstjórn samþykkti tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum. $line$$line$Bæjarstjórn samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framlagða tillögu um að vísa framlagðri fjárhagsáætlun 2013-2016 til síðari umræðu í bæjarstjórn þann 5. desember 2012.
-
1210662 – Álagning sveitarsjóðsgjalda 2013
Forseti bar upp að nýju svohljóðandi framlagða tillögu um álagningu sveitarsjóðsgjalda 2013:$line$“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að útsvarshlutfall árið 2013 verð óbreytt, þ.e. 14,48%“ $line$$line$Bæjarstjórn samþykkti framlagða tillögu með 6 atkvæðum. 5 sátu hjá.
-