Bæjarráð

10. ágúst 2023 kl. 08:15

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Fundur 3634

Mætt til fundar

  • Valdimar Víðisson formaður
  • Skarphéðinn Orri Björnsson varaformaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður
  • Guðmundur Árni Stefánsson aðalmaður
  • Sigrún Sverrisdóttir aðalmaður
  • Jón Ingi Hákonarson áheyrnarfulltrúi

Auk þess sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.

Ritari

  • Ívar Bragason Bæjarlögmaður

Auk þess sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.

  1. Almenn erindi

    • 2005180 – Samgöngusáttmáli

      Lögð fram til kynningar sex mánaða skýrsla Betri samgangna ohf., um stöðu og framgang verkefna. Davíð Þorláksson frá Betri samgöngum mætir til fundarins.

      Bæjarráð þakkar Davíð Þorlákssyni frá Betri samgöngum fyrir kynninguna.
      Lagt fram.

    • 1904083 – Matarútboð skóla 2019

      Lagður fram samningsviðauki við þjónustusamning við Skólamat ehf. á mat fyrir leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar. Ágúst Þór Ragnarsson innkaupastjóri og Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mæta til fundarins.

      Bæjarráð samþykkir samningsviðauka við þjónustusamning við Skólamat. Ákvæði um heimild til framlengingar um eitt ár er virkjuð og gildir þá frá 31.07.2023 ? 31.07.2024.

      Breyting á einingaverðum er vísað til viðaukagerðar fyrir árið 2023.

    • 2302533 – Kaplakriki, fasteignir, eignarhald

      Til umræðu. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.

      Á fundi bæjarráðs þann 15. júní sl. var samþykkt að vísa beiðni um viðbót vegna hybrid grasæfingarsvæðins til skoðunar í fjárhagsáætlunarvinnu 2024. Bæjarráð breytir þeirri ákvörðun og samþykkir að greiða þann umframkostnað sem orðið hefur vegna hybrid grasæfingarsvæðis á þessu ári í samræmi við fyrirliggjandi minnisblað og vísar til viðaukagerðar vegna 2023.

    • 2303112 – Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar, starfsmannahald 2023

      3.liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 14. júní sl.
      Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að vísa fjölgun stöðugilda um 2 á þjónustumiðstöð til viðauka við fjárhagsáætlun 2023 og áframhaldandi aukningu vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024. Erindinu vísað til bæjarráðs.

      Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.

      Bæjarráð samþykkir erindið og vísar til viðaukagerðar.

    • 2007447 – Verslunarmiðstöðin Fjörður, ósk um samstarf, erindi

      Umræða varðandi nýtt bókasafn. Sigurjón Ólafsson sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs mætir til fundarins.

      Til umræðu.

    • 2204035 – Strandgata 41, fráveita, erindi

      Tekið fyrir.

      Bæjarráð samþykkir framlagt tilboð í eignina.

    • 2308016 – Strandgata 26-30, umsókn um lokun Strandgötu

      Lögð fram umsókn um lokun Strandgötu vegna byggingarframkvæmda við Fjörð.

      Bæjarráð samþykkir lokun Strandgötu fyrir allan akstur í 2-4 daga í kringum 15. ágúst. Mikilvægt er að slík lokun sé kynnt vel fyrir íbúum og fyrirtækjaeigendum í Strandgötu. Einnig þarf að auglýsa lokun á miðlum bæjarins.

      Beiðni um lokun Strandgötu að hluta til í 1-2 ár er vísað til afgreiðslu á umhverfis- og framkvæmdarsviði.

    • 2306620 – Krýsuvík, beitarland

      Lögð fram svör við fyrirspurn Viðreisnar.

      Viðreisn þakkar framkomin svör.

    • 2110127 – ADHD samtökin, styrkumsókn

      Umsókn um styrk.

      Bæjarráð vísar erindinu til mennta- og lýðheilsusviðs.

    • 2303648 – Garðavegur 8, endurnýjun lóðarleigusamnings

      Lögð fram drög að endurnýjun lóðarleigusamnings.

      Samþykkt.

    • 2302387 – Kirkjuvegur 3a, umsókn um lóðarleigusamning

      Lögð fram drög að endurnýjun lóðarleigusamninga.

      Lagt fram.

    • 1910342 – Villikettir, húsnæðismál

      Til umræðu.

      Vísað til skipulags- og byggingarráðs.

    • 2307268 – Hringhamar 43, hjúkrunarheimili, tilboð

      Lagt fram tilboð vegna hjúkrunarheimilis.

      Vísað til fjölskylduráðs.

    • 1809298 – Tækniskólinn, nýbygging, erindi

      Til umræðu.

Ábendingagátt