Fjölskylduráð

16. nóvember 2011 kl. 08:15

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Fundur 213

Mætt til fundar

  • Guðný Stefánsdóttir aðalmaður
  • Birna Ólafsdóttir aðalmaður
  • Geir Jónsson aðalmaður
  • Elín Sigríður Óladóttir aðalmaður
  • Kristín G Gunnbjörnsdóttir varamaður
  • Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri

Ritari

  • Margrét L. Jónsdóttir ritari fjölskylduráðs
  1. Kynning

    • 1110160 – Tóbakssala/tóbakssölueftirlit

      Til fundarins mættu Guðmundur H. Einarsson heilbrigðisfulltrúi, Anna Jörgensdóttir lögmaður og Geir Bjarnason forvarnafulltrúi.$line$Tekin fyrir skýrsla heilbrigðiseftirlitsins um tóbakssölu og úrskurður úrskurðarnefndar um hollustuhætti og mengunarvarnir varðandi tóbakssölueftirlit.

    • 0711032 – Hagir og líðan barna í 5.-7. bekk

      Forvarnafulltrúi kynnti niðurstöður nýlegrar könnunar Rannsókna og greiningar á högum og líðan barna í 5.-7. bekk í Hafnarfirði.

    • 11023021 – Félagsmiðstöðvar og heilsdagsskóli

      Sviðsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.

    Almenn erindi

    • 1111151 – Erindisbréf fjölskylduráðs

      Til fundarins mætti Anna Jörgensdóttir lögmaður.$line$Lögð fram drög að erindisbréfi fjölskylduráðs sem hafa verið í vinnslu hjá forsetanefnd og lögfræðingateymi.

    • 0701245 – Atvinnuástandið

      Lögð fram skýrsla Vinnumálastofnunar um atvinnuástandið í okt. sl.

    • 0912025 – Atvinnuleysistölur, Hafnarfirði

      Lagðar fram tölur um atvinnuleysi í Hafnarfirði 2009-2011.

    • 0701243 – Málskot

      Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 37/2011, 38/2011 og 34/2011.

      Niðurstaða málskotsnefndar staðfest.

    Umsóknir

    • 1111119 – Snorraverkefnið sumarið 2012, stuðningur

      Lagt fram erindi frá Snorraverkefninu, dags. 7. nóv. sl., beiðni um styrk fyrir árið 2012.

      Vísað til Vinnuskólans.

    • 1111165 – Stígamót, fjárbeiðni fyrir árið 2012

      Lagt fram erindi frá Stígamótum, ódags., styrkbeiðni fyrir árið 2012.

      Vísað til bæjarráðs.

    Fundargerðir

    • 1111007F – Íþrótta- og tómstundanefnd - 142

      Lögð fram fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 9. nóv. sl.

      Fjölskylduráð staðfestir fundargerðina.

Ábendingagátt