Hafnarstjóri lagði fram yfirlit yfir skipaumferð um Hafnarfjarðarhöfn árið 2010 og fyrstu 11 mánuði 2011, ásamt vörumagni, sem fór um hafnir Hafnarfjarðarhafnar á sama tíma.
Hafnarstjórn
á hafnarskrifstofu
Mætt til fundar
- Eyjólfur Sæmundsson formaður
- Guðfinna Guðmundsdóttir aðalmaður
- Sigurbergur Árnason aðalmaður
- Haraldur Þór Ólason aðalmaður
- Helga R Stefánsdóttir aðalmaður
- Elín Soffía Harðardóttir varamaður
- Ingvar J Viktorsson varamaður
- Birna Ólafsdóttir varamaður
- Örn Tryggvi Johnsen varamaður
- Lovísa Árnadóttir varamaður
Ritari
- Ína Illugadóttir skrifstofustjóri
-
Almenn erindi
-
1010890 – Áætlun 2011, Hafnarfjarðarhöfn
-
1011392 – Átaksverkefni tengd hafnsækinni starfsemi.
Formaður hafnarstjórnar skýrði frá fundi átakshóps með tveimur þjónustufyrirtækjum á hafnarsvæði Hafnarfjarðar, sem fram fór 1. nóvember sl.
-
1109041 – Áætlun fyrir Hafnarfjarðarhöfn 2012
Hafnarstjóri fór yfir áætlun hafnarinnar, sem var lögð fram í bæjarstjórn 7. desember 2011.
-
0805038 – Hafnar- og lóðarsamningur, endurskoðun
Formaður gerði hafnarstjórn grein fyrir stöðu viðræðna við Alcan á Íslandi hf.
-
0901114 – Olíulöndunarbryggja, bruna- og mengunarvarnir. Viðgerð á Suðurbakka
Lögð fram tilboð í fjóra verkþætti.$line$5 tilboð bárust í smíði olíuþróar á Olíukeri.$line$6 tilboð bárust í lagfæringu aðkomu að Olíukeri.$line$6 tilboð bárust í þekjuvinnu vegna viðgerðar á stálþili Suðurbakka.$line$7 tilboð bárust í viðgerð á stálþili Suðurbakka.
Samþykkt að ganga til samninga við Matthías ehf vegna verkhluta 1. við Fagverk ehf vegna verkhluta 2. við Loftorku hf vegna verkhluta 3 og jafnframt að ganga til samninga við Kögunarþjónustu Sigurðar vegna viðgerðar á Stalþini í Suðurhöfn.
-