Lagt fram bréf frá Lárusi Karli Ingasyni, dagsett 4. nóvember varðandi aukinn kostnað, sem hefur orðið við prentun og frágang bókarinnar um sögu Hafnarfjarðarhafnar.
Hafnarstjórn
13. nóvember 2012 kl. 12:00
á hafnarskrifstofu
Fundur
1417
Mætt til fundar
- Eyjólfur Sæmundsson formaður
- Guðfinna Guðmundsdóttir aðalmaður
- Sigurbergur Árnason aðalmaður
- Haraldur Þór Ólason aðalmaður
- Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri
Ritari
- Ína Illugadóttir skrifstofustjóri
-
Almenn erindi
-
0909104 – Saga Hafnarfjarðarhafnar
Hafnarstjórn samþykkir að vísa málinu til ritnefndar og tekur málið til umræðu á ný á næsta fundi.
-
1107199 – Áhættumat starfa hjá Hafnarfjarðarhöfn
Kristinn Aadnegard yfirhafnsögumaður mætti til fundarins og gerði grein fyrir stöðu mála varðandi umhverfis- og öryggismál hafnarinnar.
Hafnarstjórn samþykkir að óska eftir stöðuskýrslu um öryggis- og umhverfismál fyrir höfnina árið 2012.
-
1109041 – Fjárhagsáætlun, uppgjör og ársreikningur 2012
Bjarni Sveinsson hafnsögumaður gerði grein fyrir skipaumferð og vöruumferð um höfnina janúar til september 2012 og samanburð við síðastliðin ár.
-