Íþrótta- og tómstundanefnd

12. október 2011 kl. 15:00

í Íþróttahúsinu við Strandgötu

Fundur 140

Mætt til fundar

  • Ragnheiður Ólafsdóttir aðalmaður
  • Klara Hallgrímsdóttir aðalmaður
  • Lára Janusdóttir aðalmaður
  • Elísabet Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Þór Sigurjónsson áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Anna K. Bjarnadóttir
  1. Almenn erindi

    • 1109130 – Íþróttastarf, haustbyrjun

      Framkvæmdarstjóri ÍBH fór yfir samanburð á æfingargjöldum/félagsgjöldum íþróttafélaganna 16 ára og yngri, á milli ára án niðurgreiðslu.

      Íþrótta- og tómstundanefnd leggur áherslu á að upplýsingar um æfingagjöld á heimasíðum íþróttafélaganna varðandi verð, æfingafjölda og aðra þjónustu, séu skýrar og aðgengilegar.

    • 1104069 – Fimleikafélagið Björk og Badmintonfélag Hafnarfjarðar, erindi v/rekstrarmála

      Lagt fram svar við erindi Fimleikafélagsins Björk og Badmintonfélags Hafnarfjarðar þar sem óskað er eftir viðræðum vegna yfirtöku reksturs íþróttahúsa.

      Íþrótta- og tómstundanefnd telur ekki ástæðu til frekari breytinga á rekstri íþróttahúsa bæjarins að svo stöddu.

    Fundargerðir

    • 0901162 – Fundargerðir 2011, Ungmennaráð Hafnarfjarðar, UMH,

      Lagðar fram til kynningar fundargerðir Ungmennaráðs Hafnarfjarðar frá 29.9. og 7.10. s.l.

    • 1101012 – Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir 2011

      Lögð fram til upplýsinga fundargerð skíðasvæða höfuðborgarsvæðis frá 29.9. s.l.

Ábendingagátt