Íþrótta- og tómstundanefnd

13. desember 2012 kl. 15:15

í Íþróttahúsinu við Strandgötu

Fundur 163

Mætt til fundar

  • Ragnheiður Ólafsdóttir aðalmaður
  • Klara Hallgrímsdóttir aðalmaður
  • Hrafnkell Marinósson áheyrnarfulltrúi
  • Elísabet Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ingvar Sigurður Jónsson starfsmaður
  • Daníel Pétursson fundarritari
  • Gísli Rúnar Gíslason varamaður

Ritari

  • Daníel Pétursson
  1. Almenn erindi

    • 1011080 – Íþróttahátíð Hafnarfjarðar 2012

      Farið yfir tilnefningar frá íþróttafélögum og dagskrá íþróttahátíðar, sem haldin verður 28. desember kl 18.00 í Íþróttahúsi Strandgötu.

      Lögð fram dagskrá hátíðarinnar sem haldin verður í Íþróttahúsinu við Strandgötu, föstudaginn 28.desember nk. kl. 18:00.$line$Alls verða heiðraðir um 505 Íslandsmeistarar, 13 hópar Bikarmeistara, sérviðurkenningar til 5 einstaklinga vegna Norðurlandameistaratitla.Sundsveit er synti yfir Ermasundið s.l. haust 5 einstaklingar. Einnig verða veittir viðurkenningarstyrkir til íþróttafélaga vegna Íslands- og Bikarmeistaratitla í efstu flokkum, alls 7 hópar og til úthlutunar kr. 2.100,000$line$$line$Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir tilnefningu á íþróttakarli og íþróttakonu Hafnarfjarðar árið 2012 og afreksmönnum íþróttafélaganna í Hafnarfirði sem skarað hafa fram úr á árinu. $line$$line$Einnig samþykkt tilnefning á íþróttaliði ársins 2012.$line$ $line$Fylgir með á sérblaði og sendist til Fjölskylduráðs til umfjöllunar.$line$

    • 0812046 – ÍBH, Hafnarfjarðarbær, Alcan,úthlutun skv samningi

      Lögð fram til kynningar drög að úthlutun styrkja til íþróttafélaganna samkvæmt samningi þar um vegna íþróttastarfs 16 ára og yngri með tilliti til menntunarþáttar þjálfara og námskrárgerðar íþróttafélaganna og nema heildarupphæð þeir alls kr. 6.000.000.-. Afhending styrkjanna fer fram á Íþróttahátíðinni 28.desember n.k.

Ábendingagátt