Lýðræðis- og jafnréttisnefnd

12. júní 2007 kl. 00:00

í fundarherbergi 3ju hæð, Strandgötu 6

Fundur 74

Ritari

  • Anna Jörgensdóttir lýðræðis- og jafnréttisfulltrúi
  1. Almenn erindi

    • 0706145 – Jafnréttisgátlisti í jafnréttismálum 2004-2008

      Lagt fram bréf, dags. 5. júní sl., frá forsætisráðuneytinu þar sem óskað er eftir að jafnréttisgátlista veðri dreift til allra þeirra sem koma að opinberri stefnumótun á vegum sveitarfélagsins.

      Lýðræðis- og jafnréttisnefnd felur lýðræðis- og jafnréttisfulltrúa að dreifa jafnréttisgátlista á þá aðila sem koma að opinberri stefnumótun á vegum sveitarfélagsins.

    • 0705236 – Landsfundur jafnréttisnefnda í Fjarðabyggð 4-5 júní 2007.

      Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga var haldinn í Fjarðabyggð 4.-5. júní 2007. Á fundinum voru flutt mörg fróðleg erindi um stöðu jafnréttismála og urðu líflegar umræður á meðan á fundinum stóð. Í lok fundarins voru nokkrar ályktanir samþykktar.%0D%0D%0DÁlyktanir landsfundar: %0D%0DFundurinn hvetur atvinnurekendur, stjórnvöld og almenning til að uppræta staðalímyndir um karla- og kvennastörf með það að markmiði að ná fram raunverulegu jafnrétti á vinnumarkaði og á heimilum. Markvisst ber að fjölga einstaklingum af því kyni sem er í minnihluta í hverri starfsgrein og brýnt er að hækka laun uppeldis- og umönnunarstétta.%0D%0D%0DFundurinn hvetur sveitarfélög til að auka sveigjanleika í starfsemi leikskóla svo samræma megi betur fjölskyldulíf og atvinnuþátttöku beggja foreldra. Þá er brýnt að stjórnvöld og atvinnurekendur vinni markvisst að því að stytta vinnutíma foreldra, þannig að þeim verði gert kleift að sinna betur fjölskylduábyrgð sinni.%0D%0D%0DFundurinn hvetur sveitarfélög til að breyta lögreglusamþykktum þannig að starfsemi nektardansstaða verði ekki leyfð, enda felur slík starfsemi í sér mannfyrirlitningu og eykur enn á misrétti kynjanna.%0D%0D%0DFundurinn hvetur Alþingi til þess að samþykkja óbreytt framkomið frumvarp um breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.%0D%0D

    • 0703082 – Jafnréttisstefna Hafnarfjarðarbæjar 2007.

      Jóna Valborg Árnadóttir mætti til fundarins. Farið yfir drög að jafnréttisstefnu.

Ábendingagátt