Menningar- og ferðamálanefnd

30. ágúst 2011 kl. 15:00

í fundarherbergi 3ju hæð, Strandgötu 6

Fundur 166

Mætt til fundar

  • Þorsteinn Kristinsson aðalmaður
  • aðalmaður
  • Unnur Lára Bryde aðalmaður

Ritari

  • Marín Hrafnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
  1. Almenn erindi

    • 1009320 – Gaflaraleikhúsið

      Lögð fram rekstrar- og leikáætlun leikársins 2011-2012.

      Nefndin lýsir yfir ánægju með metnaðarfulla dagskrá vetrarins.

    • 11021243 – Kvikmyndasafn Íslands og Bæjarbíó.

      Menningar- og ferðamálafulltrúi greindi frá símtali við Eirík Þorláksson í menntamálaráðuneytinu. Málið rætt.

    • 1108149 – Jólaþorpið 2011

      Rætt um opnunartíma, leiguverð á söluhúsum og fl.

      Ákveðið að leggja til við bæjarráð að hækka leiguverð á söluhúsum Jólaþorpsins 2011 úr kr. 8000 í kr. 10.000 fyrir helgina og úr kr. 5000 í kr. 7500 fyrir daginn.

    • 1108296 – Flutningur á skrifstofum Byggðasafns og menningar- og ferðamála.

      Greint frá því að Skrifstofa menningar- og ferðamála hefur flust að Strandgötu 6 og að skrifstofur Byggðasafnins munu flytja í næstu viku að Strandgötu 4.

Ábendingagátt