Lagt fram erindi frá Álfagarðinum í Hellisgerði þar sem óskað er eftir framlenginu á samningi.
Menningar- og ferðamálanefnd
9. ágúst 2012 kl. 16:00
á Strandgötu 8
Fundur
185
Mætt til fundar
- Þorsteinn Kristinsson aðalmaður
- Jóhanna Marín Jónsdóttir aðalmaður
- Unnur Lára Bryde aðalmaður
Ritari
- Marín Hrafnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
-
Almenn erindi
-
1208063 – Álfagarðurinn. Umsókn um framlengingu á samningi um afnot af húsi í Hellisgerði.
Nefndin samþykkir að framlengja samning um eitt ár til viðbótar eins og kveðið er á um í samningi frá 2011. Nefndin telur starfsemi Álfagarðsins bænum til sóma og óskar honum velfarnaðar.
-
1202073 – Stefnumótun menningar- og ferðamálanefndar í ferðamálum.
Ákveðið að óska eftir umsögnum nefnda og ráða sem fyrst.
-
1207251 – Reglur um götusölu og útimarkaði
Lagt fram til upplýsingar.
Reglur lagðar fram til upplýsingar.
-
1105286 – Hafnarfjarðarvefurinn. visithafnarfjordur.is
Rætt um vefinn og hvernig megi gera hann betri og efnismeiri.
-
1204331 – Reykjanesfólkvangur, fundargerðir 2012
-