Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að skipulagsforsögn dags. 25.10.07, um fyrirkomulag á reitnum milli bókasafnsins og Súfistans.
Miðbæjarnefnd
14. nóvember 2007 kl. 08:30
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Fundur
68
Ritari
- Anna S. Ólafsdóttir
-
Almenn erindi
-
SB060701 – Bókasafnsreitur
Málfríður Kristjánsdóttir, skipulags- og byggingasviði kom og kynnti skipulagsforsögnina. Nefndin þakkar kynninguna.
-
0711089 – Jóladagskrá í miðbæ Hafnarfjarðar
Þjónustu- og þróunarstjóri lagði fram tillögu að kynningarfundi um jóladagskrá í miðbænum fyrir hagsmunaaðilum.
Nefndin leggur til að haldinn verði sameiginlegur samráðsfundur með menningar- og ferðamálanefnd þann 22. nóvember kl.8:30 fyrir verslunar- og þjónustuaðilum þar sem kynnt verður jóladagskrá í miðbænum. Slíkur kynningar- og umræðuvettvangur sé mikilvægur til eflingar samráðs hagsmunaðila.
-