Undirbúningshópur umferðarmála

11. október 2011 kl. 14:15

í fundarherbergi framkvæmdasviðs, Norðurhellu 2

Fundur 63

Mætt til fundar

  • Sigríður Björk Jónsdóttir formaður

Ritari

  • Helga Stefánsdóttir verkfræðingur
  1. Almenn erindi

    • 1110048 – Arnarhraun/Smyrlahraun - umferðaröryggi

      Lagt fram erindi frá Matthildi Þórðardóttur varðandi umferðarhraða á gatnamótum Arnarhrauns/Smyrlahrauns og ósk um lagfæringar.

      UHU leggur til að hraði verði mældur á gatnamótunum og skoðað verði með að endurgera hindrunina sem er fyrir á gatnamótunum.

    • 1110049 – Hellnahraun II - umferðaröryggi

      Lagt fram erindi Jóns D Ólafssonar vegna hraðaksturs í Hellnahrauni II.

      Lagt fram.

    • 1110051 – Norðurbraut og aðliggjandi götur - umferðaröryggi

      Lagt fram erindi Hilmars Erlendssonar varðandi hraðakstur á Norðurbraut og ósk um hraðahindranir við aðliggjandi götur.

      UHU leggur til að hraði verði mældur á Norðurbrautinni.

    • 1110052 – Breiðvangur - umferðaröryggi

      Lögð fram ábendin Berglindar Hilmarsdóttur varðandi mikin og hraðan akstur um götuna sem tengist skólanum.

      UHU leggur til að hraði verði mældur í götunni.

Ábendingagátt