Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Stóra upplestrarkeppnin fagnar í ár 25 ára afmæli og hefur keppnin stækkað og eflst svo um munar með árunum og er nú haldin á landsvísu. Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarfirði var haldin í Víðistaðakirkju í gær að viðstöddum fulltrúum frá grunnskólum Hafnarfjarðar, aðstandendum og boðsgestum.
Stóra upplestrarkeppnin fagnar í ár 25 ára afmæli og hefur keppnin stækkað og eflst svo um munar með árunum og er nú haldin á landsvísu. Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarfirði var haldin í Víðistaðakirkju í gær að viðstöddum fulltrúum frá grunnskólum Hafnarfjarðar, aðstandendum og boðsgestum. Þessi merkilega keppni hefst ár hvert á Degi íslenskrar tungu 16. nóvember og lýkur í mars með því að veitt er viðurkenning til þriggja nemenda í hverju byggðarlagi sem þykja fremstir meðal jafningja.
Hér má sjá þá nemendur sem hrepptu efstu sætin ásamt skólastjórum þeirra skóla. Sigurður Ísak Hlynsson í Hraunvallaskóla með Lars Jóhanni Imsland skólastjóra og þær Rán Þórarinsdóttir og Lilja Dís Hjörleifsdóttir í Setbergsskóla með Maríu Pálmadóttur skólastjóra.
Allir grunnskólar Hafnarfjarðar senda fulltrúa til keppninnar og koma tveir frá hverjum skóla. Á hátíðinni stigu sextán nemendur úr 7. bekkjum grunnskólanna á stokk og fluttu brot úr skáldverki Bergrúnar Írisar Sævarsdóttur og ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk en þau eru skáld keppninnar í ár. Allir nemendur fengu viðurkenningu og gjafir fyrir flutning sinn og frammistöðu og hvatningu og hamingjuóskir frá Forseta Íslands Guðna Th. Jóhannessyni, Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra, Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra og Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur skáldi keppninnar og bæjarlistamanni Hafnarfjarðar 2020 sem öll heiðruðu hópinn með nærveru sinni. Dómnefnd valdi að lokum þrjá bestu fyrirlesarana og veitti þeim sérstaka viðurkenningu. Það voru þau Rán Þórarinsdóttir í Setbergsskóla (1. sæti), Lilja Dís Hjörleifsdóttir í Setbergsskóla (2. sæti) og Sigurður Ísak Hlynsson (3. sæti) í Hraunvallaskóla sem þóttu fremst meðal jafningja þetta árið. Dómnefndina í ár skipuðu þau Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, Björk Einisdóttir formaður dómnefndar, Almar Blær Sigurjónsson og Birgir Örn Guðjónsson. Nemendur frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar stigu á stokk með fallegan hljóðfæraleik auk þess sem nemendur í 4. bekk og þátttakendur í Litlu upplestrarkeppninni 2021 sigu fram sem talkór sem er eitt af einkennum Litlu upplestrarkeppninnar.
Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson, Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar heiðruðu hópinn með nærveru sinni.
Viðurkenningar fyrir listaverk og smásögur
Á hátíðinni voru viðurkenningar veittar fyrir smásagnasamkeppni 8. – 10. bekkja og í samkeppni um verðlaunamynd á boðskort lokahátíðarinnar. Kolbrún Garðarsdóttir í 10. bekk í Hraunvallaskóla hlaut fyrsta sætið fyrir söguna Snjókorn sem taka sinn tíma og Marta Björnsdóttir í Öldutúnsskóla annað sætið fyrir söguna Lovísu. Þær Elísa Lana Sigurjónsdóttir í Víðistaðaskóla með söguna Með lífið að veði og Elísa Kristín Böðvarsdóttir í Skarðshlíðarskóla með söguna Flateyri lentu saman í þriðja sæti. Eyrún Guðmundsdóttir nemandi í Lækjarskóla fékk viðurkenningu fyrir listaverk á boðskort lokahátíðar en ár hvert taka nemendur í sjöttu bekkjum skólanna þátt í samkeppni um boðskort.
Snýst ekki um að koma fyrstur í mark
Stóra upplestrarkeppnin snýst ekki um að komast fyrstur í mark heldur um þjálfun og það að vanda sig í upplestri. Ingibjörg Einarsdóttir upphafsmaður Stóru upplestrarkeppninnar hefur fylgt keppninni eftir frá upphafi eða í 25 ár, þróað hana og mótað í virku samstarfi við m.a. sveitarfélög og skólasamfélagið á hverjum stað. Stóra upplestrarkeppnin hófst sem tilraunaverkefni um upplestur í Hafnarfirði veturinn 1996-1997 en þróaðist fljótt í að verða verkefni sem framkvæmt er á landsvísu af félaginu Röddum, samtökum um vandaðan upplestur og framsögn. Árið í ár er síðasta árið sem Raddir og frumkvöðullinn Ingibjörg sjá um framkvæmdina á keppninni og hátíðinni og tók Ingibjörg á móti þökkum og árnaðaróskum á uppskeruhátíð gærdagsins. Framkvæmdin mun framvegis verða á hendi sveitarfélaganna sjálfra. Raddir munu áfram standa að Litlu upplestrarkeppninni sem er vaxandi sprotaverkefni út frá Stóru upplestrarkeppninni ætlað nemendum í 4. bekkjum grunnskólanna og hefur sama tilgang en öðruvísi nálgun. Í grunninn snúast báðar keppnirnar um að rækta ylhýra íslenska tungu með þjálfun og vönduðum upplestri.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…