Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Þáttaskil verða í undirbúningi fyrirhugaðrar Borgarlínu, nýs hágæða samgöngukerfis sem fá mun sérrými í gatnakerfi höfuðborgarsvæðisins, þegar vinnslutillögur um breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins til 2040 og aðalskipulagi sveitarfélaganna sex sem standa að Borgarlínu verða kynntar á sameiginlegum fundi sveitarfélaganna í Salnum í dag
Þáttaskil verða í undirbúningi fyrirhugaðrar Borgarlínu, nýs hágæða samgöngukerfis sem fá mun sérrými í gatnakerfi höfuðborgarsvæðisins, þegar vinnslutillögur um breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins til 2040 og aðalskipulagi sveitarfélaganna sex sem standa að Borgarlínu verða kynntar á sameiginlegum fundi sveitarfélaganna í Salnum í dag. Þar verða kynntar tillögur um staðsetningu línuleiða og helstu stöðva Borgarlínu og skilgreind viðmið um uppbyggingu á áhrifasvæðum línunnar en gert er ráð fyrir að Borgarlínan verði allt að 57 km að lengd og að verkefnið verði áfangaskipt.
Þær vinnslutillögur sem nú eru í forkynningu byggja á valkostagreiningu dönsku verkfræðistofunnar COWI. Í þeirri vinnu var horft til þess hvernig höfuðborgarsvæðið muni þróast næstu áratugi. Um er að ræða tillögu að heildarneti innviða sem byggt verði upp í áföngum. Stefnt er að því að endanlegar tillögur um legu línunnar liggi fyrir síðsumars og að undirbúningi fyrsta áfanga ljúki í byrjun árs 2018.
Sjá áfangaskýrslu um greiningu á línum Borgarlínu
Kostnaður við innviði Borgarlínu er áætlaður um 1,10-1,15 milljarður króna á hvern kílómetra á verðlagi í janúar 2017 og því gæti kostnaður við heildarnetið, sem byggt verður upp í áföngum, numið 63 til 70 milljörðum króna.
Fyrstu tillögur um Borgarlínu
Hvers vegna?
Áætlað er að á næstu 25 árum fjölgi íbúum höfuðborgarsvæðisins um hátt í 40% eða um 70.000 og verði þá orðnir tæplega 300 þúsund. Þegar við bætist vaxandi straumur ferðamanna er ljóst að það stefnir í stóraukna umferð. Haldist ferðavenjur óbreyttar mun þessi fjölgun valda erfiðleikum í samgöngum og auknum töfum í umferðinni, þrátt fyrir gríðarlegar fjárfestingar í nýjum umferðarmannvirkjum. Áætlað er að ferðatími geti að óbreyttu aukist um allt að 65% og umferðartafir um rúmlega 80%.
Markmið sveitarfélaganna með Borgarlínu er að auka vægi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Það mun ekki gerast án þess að byggðir verði upp innviðir fyrir afkastamiklar almenningssamgöngur. Um Borgarlínu gilda sömu lögmál og við skipulag innviða annarra samgangna, s.s. stofnvega. Horfa þarf áratugi fram í tímann þannig að þeir áfangar sem byggðir verða upp myndi á endanum eðlilega heild. Ljóst er að umferðarmál höfuðborgarsvæðisins verða ekki leyst með annaðhvort öflugra gatnakerfi eða almenningssamgöngum. Því þarf samspil þessara tveggja lausna að koma til og þar munu almenningssamgöngur gegna mikilvægu hlutverki fyrir íbúa svæðisins. Ein helsta áskorun borgarumhverfis framtíðarinnar er plássleysi og sökum þess munu fyrirsjáanlegar tækniframfarir með sjálfkeyrandi bílum aldrei geta leyst af hólmi afkastamiklar almenningssamgöngur.
Umhverfisvænn og fljótlegur ferðamáti
Borgarlína er afrakstur umfangsmikils og náins samstarfs sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu undanfarin misseri og að baki liggur nákvæm greining á framtíð samgangna á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við Vegagerðina.
Vagnar Borgarlínu verða rafknúnir og munu ferðast í sérrýmum og fá forgang á umferðarljósum. Það eykur áreiðanleika og hraða, þannig að ferðatími verði samkeppnishæfari við aðra ferðamáta. Fyrirhuguð Borgarlína er því hagkvæm og vistvæn leið til að auka flutningsgetu á milli sveitarfélaganna og gera þeim kleift að mæta tæplega 40% fjölgun íbúa og fjölgun ferðamanna fram til ársins 2040 án þess að álag á stofnvegakerfið aukist að sama skapi. Gert er ráð fyrir mikilli ferðatíðni sem geti farið í 5-7 mínútur á annatímum. Lögð verður áhersla á vandaðar, yfirbyggðar biðstöðvar, með farmiðasjálfsölum og upplýsingaskiltum sem sýna í rauntíma hvenær næsti vagn kemur. Vagnarnir munu stöðva þétt við brautarpalla sem verða í sömu hæð og gólf vagnanna sem auðveldar aðgengi fyrir alla.
Upphaf skipulagsferlis Borgarlínu
Þróun Borgarlínu er í samræmi við svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins frá 2015 en samkomulag um undirbúning línunnar var undirritað af borgarstjóra og bæjarstjórum hinna sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu í desember 2016. Stefnt er að því að endanlegar tillögur um legu Borgarlínu liggi fyrir síðsumars 2017. Kynningin í Salnum í dag markar þannig tímamót nú þegar almenningur og hagsmunaaðilar geta kynnt sér drög að skipulagstillögum Borgarlínu en frestur til að koma með ábendingar eða athugasemdir er til og með 20. júní 2017. Athugasemdir og ábendingar verða að vera skriflegar og þurfa að berast skrifstofu SSH eða á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell Á Proppe, svæðisskipulagsstjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, í síma: 892 2698 – netfang: hrafnkell@ssh.is
Sjá nánar á borgarlinan.is
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…
Fjórða helgin okkar í Jólaþorpinu verður yndisleg. Veðrið mun leika við gesti en fyrst og fremst munu allar þær gersemar…
Börn fá frístundastyrk frá þriggja ára aldri. 10,6 milljarðar verða settir í fjárfestingar. Einnig verður sett fjármagn í uppbyggingu nýs…
Hjörtu okkar Hafnarfjarðar skarta fjólubláum lit í dag á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Dagurinn er 3. desember ár hvert til að…
Menntastefna Hafnarfjarðarbæjar var kynnt á starfsdegi astarfsfólks frístundar-, grunnskóla- og leikskóla Hafnarfjarðarbæjar þann 14. nóvember. Þátttakendur gátu valið um ólíka…
Ný stefna um móttöku skemmtiferðaskipa í Hafnarfirði hefur verið samþykkt af bæjarráði. Stefnan gildir til 2035.
Um 30 útskrifuðust úr Leiðtogaskóla Hafnarfjarðarbæjar á dögunum. Nú hafa 90 stjórnendur bæjarins útskrifast. Kennslan eflir bæjarbraginn.