Gæsluvöllurinn Róló
Í sumar verður starfræktur gæsluvöllurinn Róló að Smyrlahrauni 41a, í sumarfríi leikskólanna frá 12. júlí til og með 9. ágúst. Opnunartími er frá kl. 9-12 og 13-16 (lokað í hádeginu). Róló er ætlaður börnum á aldrinum 2-6 ára.
Í sumar verður starfræktur gæsluvöllurinn Róló að Smyrlahrauni 41a, í sumarfríi leikskólanna frá 12. júlí til og með 9. ágúst. Opnunartími er frá kl. 9-12 og 13-16 (lokað í hádeginu). Róló er ætlaður börnum á aldrinum 2-6 ára. Börnin verða að vera klædd eftir veðri og með aukaföt. Athugið að ekki er aðstaða til inniveru önnur en sú að nota salerni og til að geyma töskur/poka.
Í boði eru tvennskonar klippikort á Róló:
- 5 skipta klippikort – 1.200 kr.
- 10 skipta klippikort – 2.200 kr.
Hægt er að kaupa klippikortin á mínum síðum á http://www.hafnarfjordur.is – skráning á sumarnámskeið 2017. Á mínum síðum er hægt að greiða með bæði debet og kreditkorti
Umsjónarmaður er Karítas Gunnarsdóttir – sími: 664-5533. Nánari upplýsingar hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar: 565-1899 eða vinnuskoli@hafnarfjordur.is